Leita í fréttum mbl.is

Gott fyrsta skref - ábendingar til bóta

Það er ánægjulegt að ríkisstjórnin er að hlusta á ábendingar þeirra sem standa í fararbroddi fyrir því að verja hagsmuni heimilanna.  Þarna koma fram þrjú mikilvæg atriði í baráttunni, en mér sýnist tvö þeirra mætti bæta örlítið, til að gera gott mál ennþá betra.

1. Ekki er nóg að breyta lögum um gjaldþrot þannig að kröfur fyrnist á 2 árum, heldur þarf einnig að taka fyrir að endalaust sé hægt að halda kröfum á lífi með því endurlýsa kröfum áður en fyrningarfrestur rennur út.  Í því felst helsti galli núverandi fyrirkomulags, þ.e. hægt er að halda fólki í lífstíðarskuldafangelsi með því að kröfur eru endurnýjaðar út í það endalausa.

2. Betra er að stöðva nauðungarsölur lengur, en til 1. ágúst.  Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt til 1. nóvember.  Ástæður fyrir þeirri dagsetningu eru nokkrar:  Alþingi hefur hafið störf aftur eftir sitt venjubundna aukna sumarleyfi og getur því skoðað árangur af aðgerðinni áður en hún fellur úr gildi eða  tekið ákvörðun um að framlengja bannið við nauðungarsölum.  Í annan stað gefst lengri tími til að koma með úrræði.  Nú fer í gang kosningabarátta og því mun verða hálfgerður biðtími eða leikhlé í þjóðfélaginu 1 - 2 mánuði af þessum 6 mánuðum.  Í þriðja lagi eru sumarleyfi hjá dómstólum við lok þessa tímabils og því tefjast mál sjálfkrafa af þeim sökum.

 


mbl.is Kröfur fyrnast á tveimur árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Þetta er vissulega skref en ég veit ekki hvort það sé í rétta átt því með þessum lögum er hætt á því að gjaldþrot komist í tísku.  Þetta er í raun hvati fyrir illa stödd heimili að láta gera sig gjaldþrota. Uppboði frestað í hálft ár og fjölskyldan fær afnot af húsini í eitt ár í viðbót.

 Þá þarf bara að bíða á hálft ár eftir að mega byrja aftur. Reiknaðu dæmið fyrir skulduga fjölskyldu og segðu henni hvort betra sé að þrauka eða að fara í þrot. Ég held að stór hluti muni reikna að betra sé að fara í þrot.

Hvað gerist þá? Eftir sex mánuði byrja uppboðin og eftir eitt og hálft ár koma svo allar þessar fasteignir til viðbótar á markaðinn en ekkert selst því kaupendur eru gjaldþrota. Þessi lög þýða einfaldlega tveggja ára stöðvun á fasteignamarkaði í viðbót.

 Þetta þýðir bara algjört hrun á fasteignaverði. Því segi ég að betra sé að stýra falli fasteignaverðs með því að afskrifa hluta 30-50% af fasteignaskuldum. Þá held ég að fasteigna verð falli snöggt um 30-50% en byrji svi aftur að rísa hægt og eðlilega.

Hin leðin held ég að lækki fasteignaverð um 50-70% og muni svo rísa hægt aftur. Allar þær tilraunir sem reyndar verða til að halda uppi þessu há fasteignaverði munu mistakast. Að fresta lækkun fasteignaverð eykur hættuna á stærra hruni á fasteignaverði.

Offari, 17.2.2009 kl. 13:42

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ég fullyrði að engin hefðbundin fjölskylda vill komast á vanskilaskrá hvað þá verða gjalþrota. Þó eru innan um slíkir aðilar en þeir eru æi minnihluta.  Ég er sammála Marinó með sína punkta þá sérstaklega tímarammann og ednurnýjun. Það þarf kerfi sem gerir ungu fólki kleift að eignast húsnæði á heilbrigðan hátt. Þá á ég við að duglegt ungt vinnandi fólk getur borgað afborganir í 25-40 ár eftir greiðslugetu og geta eignast fasteign. Þeir sem lenda í vandræðum eru ekki teknir af lífi (með gjalþrotalögum) heldur hjálpað við að rétta sig við. 

Haraldur Haraldsson, 17.2.2009 kl. 13:57

3 Smámynd: Björn Finnbogason

Svo mikið hefur þegar gerst að varla er nokkur leið til baka fyrir marga.  Það er algjört frumskilyrði að ekki verði hægt að halda kröfum vakandi þannig að fólk sem fer í þrot eigi möguleika á að byrja upp á nýtt.  Fasteignamarkaðurinn er hruninn.  Því fyrr sem fólk áttar sig á að þó verið sé að hjálpa sumum meira en öðrum, kemur það öllum til góða þegar upp er staðið þar sem eignir þeirra skuldlausu eru verðlausar í augnablikinu, alveg eins og hinar.

Björn Finnbogason, 17.2.2009 kl. 14:02

4 Smámynd: Ellert Júlíusson

Engin hefðubundin fjölskylda vill það nei. En staðan er þannig hjá mjög mörgum að það er hreinlega betri kostur, eða jafnvel eini kosturinn sem þeim stendur til boða.

Ég sé til dæmis enga ástæðu til að borga af minni íbúð þegar verðgildi hennar er komið undir lánið, og ég tek það fram að ég er með Íslenskt lán á góðum vöxtum og keypti ódýrt á sínum tíma.

Ég get borgað ennþá, en hvers vegna ætti ég að gera það? Þetta er samviskuspurning sem ég er nokkuð viss um að margir eigi eftir að spyrja sig og þá sérstaklega ef þessi lög verða að veruleika.

Held að það sé bara tímaspursmál að stjórnvöld átti sig á því að þessar smávægilegu aðgerðir, sem eru einvörðungu framlenging á hengingarólinni fyrir flesta, eru bara hreinlega rangar. Afskriftir skulda, skuldbreytingar erlendra húsnæðislána eru þau atriði sem mögulega gætu bjargað Íslensku samfélagi eins og við þekkjum það.

Ellert Júlíusson, 17.2.2009 kl. 14:09

5 Smámynd: Offari

Ég fullyrði að engin hefðbundin fjölskylda vill komast á vanskilaskrá hvað þá verða gjalþrota.

Ég held að fáir vilji vera á vanskilaskrá en þegar það er orðinn besti valkosturinn er hætt við að margir velji nauðugir þann valkost frekar en að svelta.

Staðreyndin er hinsvegar sá að stór hluti þeirra sem eitt sinn hafa verið gjaldþrota virðist aftur sækjast í það að verða aftur gjaldþrota (virðast ekki hafa lært af reynsluni)Ef samaþróun verður áfram er hætt við að fólk tapi virðingu fyrir skuldunautum sínum og gjaldþrot fari bara að vera eðlilegur hlutur í lífinu.

Offari, 17.2.2009 kl. 14:11

6 Smámynd: Offari

Hér er ein hagsýn húsmóðir búin að reikna sitt dæmi. Ég reikna með að þetta sé grín hjá henni en tölurnar mæla með gjaldþroti.

http://softone.blog.is/blog/softone/entry/806318/#comment2213282

Offari, 17.2.2009 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1678127

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband