Leita í fréttum mbl.is

Hrægammarnir mættir til að bæta um betur

Ég veit í sjálfu sér ekkert hvernig staðið var að þessari sölu eða hvað liggur undir.  Þetta er svona dæmigerð frétt þessa daganna, þar sem hlutunum er skellt fram án nægilegra upplýsinga.  En það er samt skelfilegt að vita, að hingað til lands streyma hrægammar fjármálakerfisins og vilja kaupa íslenskar eignir á brunaútsölu.  Kaldhæðnin í þessu, að þetta eru líklega sömu mennirnir, eða vinna við hliða á þeim, og eru valdir af fjármálakreppunni í leit sinni af skyndigróða.  Þetta eru meira og minna aðilar frá bandarískum fjárfestinga- og vogunarsjóðum sem af eigin siðblindu hafa sett fjármálakerfi heimsins á hliðina.

Ég skora á skilnefndir bankanna, viðskiptaráðherra og forsætisráðherra að gera þessa aðila alla afturreka.  Að veita þeim ekki einu sinni viðtal, heldur benda þeim á að Ísland eigi ekki í viðskiptum við hrægamma.


mbl.is Glitnir í Svíþjóð seldur á útsölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Marinó

Var það ekki einmitt svona sem "Íslensku útrásarvíkingarnir" höguðu sér?

Alli (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 09:42

2 Smámynd: Sævar Einarsson

Þetta er rýrnun uppá 365 milljónir sænskra króna á 2 árum og svoleiðis rýrnun er útilokuð án þess að fjármálaeftirlitið í Svíþjóð hafi gert athugasemdir. Þetta var gefið í dag og mér finnst skrítið að þetta sé selt í hvelli án þess að athuga hvort fleiri hafi haft áhuga á að kaupa þetta til að reyna að fá sem mest fyrir þetta, ég er í hrikalegu fúlu skapi !

Sævar Einarsson, 17.10.2008 kl. 09:45

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Alli, ég kannast ekki við að "íslensku útrásarvíkingarnir" hafi nokkurs staðar komið þar að þar sem allt var í kaldakol til að gera ástandið verra.  Ef við ætlum að rétta hagkerfið af á sem stystum tíma með sem minnstum afföllum, þá þurfum við að fá gott verð fyrir eigur bankanna, ekki brunaútsöluverð.  Ég held að það verði betra að hafa opinbert uppboð á þessum eignum, en að selja þær svona hrægömmum.

Marinó G. Njálsson, 17.10.2008 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1678159

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband