Leita í fréttum mbl.is

Að hindra framgang réttvísinnar

Þegar maður les svona frétt um þessa fjóra menn sem hafa bindusti sammælum um að segja ekki rétt frá, þá veltir maður því fyrir sér hvort ekki séu í gildi lög á Íslandi um viðurlög við því að hindra framgang réttvísinnar.  Það er nokkuð ljóst að einn þessara manna ók bílnum og hinir þrír voru farþegar.  Með svona lög í farteskinu væri einfaldlega hægt að kæra alla fjóra og beita hvern og einn sekt eða fangelsisvist í samræmi við alvarleika málsins.  Það verður bara að segjast eins og er, að menn eru farnir að læra á kerfið og vita að lögreglan á Íslandi er það illa búin tækjabúnaði og mannskap, að hún hefur sáralitla möguleika á því að leysa svona mál.  Þetta mál snýst ekki um að vera saklaus fyrr en sekt er sönnuð.  Sektin er nefnilega sönnuð, en það er bara nafnið sem vantar.
mbl.is Neita allir sök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Refsingu eins þunga og refsiramminn leyfir og dæma þá svo alla eftir því.

Annars held ég að þarna eigi útlendingar hluta að máli og þetta er tíska hjá þeim....láta lögregluna sanna hlutina þó málið sé mjög augljóst.

Eigðu svo góðann dag.

Sverrir Einarsson, 28.9.2008 kl. 16:50

2 Smámynd: Steini Thorst

Ég verð nú að viðurkenna að hjá mér vaknar nú bara reiði ef þarna eru á ferðinni eins og þú telur vera Sverrir, útlendingar. Sér í lagi ef það eru A-Evrópubúar. Ég er í alvöru orðinn nett þreyttur yfir endalausum glæpasögum af þeim,...........

Köllum það bara það sem menn vilja,....en ég er orðinn haldinn miklum fordómum gagnvart þessu liði.

Steini Thorst, 28.9.2008 kl. 16:55

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mér finnst þjóðerni hinna brotlegu vera algjört aukaatriði, en ég býst við að menn eigi auðveldara með að sammælast um svona lagað, þegar menn ræða málin á einhverju öðru máli en "hinu ástkæra, ilhýra".

Marinó G. Njálsson, 28.9.2008 kl. 16:57

4 identicon

Ágætis innlegg en trúlega ekki þetta einfalt, svona "lagatæknilega". Það er nefnilega refsilaust fyrir sakaðan mann að reyna að ljúga sjálfan sig frá sök. Það er, manni með réttarstöðu grunaðs, verður ekki gerð refsing fyrir að ljúga eða segja ekki frá atvikum...og það getur verið hver sem er af þessum fjórum!

Hinsvegar er spurning hvort fingraför á stýri og stjórnbúnaði bílsins eigi ekki að taka af tvímæli.

Fimmta valdið (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 17:16

5 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég átta mig á því að einn er sekur og hinir saklausir.  Ég átta mig líka á að lögin vernda menn fyrir því að sakbenda sjálfan sig, þó svo að Jón Gerald hafi notið þeirrar réttarverndar.  Það eru hins vegar hinir þrír, sem eru ekki að ljúga, sem eru að hindra framgang réttvísinnar.

Varðandi fingraförin, þá er nú líklegt að þeir hafi allir tekið um stýrið eftir slysið til að gera rannsóknina erfiðari.  Ég myndi heldur halda að líkamlegir áverkar ættu að geta leitt í ljós hver sat hvar.  Fullir menn eru ekki að velta mikið fyrir sér að setja á sig bílbelti og því ætti bílstjórinn að vera með ummerki þess að hafa lent á stýrinu, en aðrir ekki.

Marinó G. Njálsson, 28.9.2008 kl. 17:25

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ace, í minni umfjöllun er það aukaatriði.  Íslendingar hafa líka beitt þessu og eru ófá eiturlyfjamál sem hafa verið dæmd á líkum, þar sem enginn hefur viljað kannast við að eiga efnin.

Ég hef nákvæmlega engan áhuga á að þessi umræða snúist upp í þjóðernishyggju og bið fólk því að halda sig frá slíku.

Marinó G. Njálsson, 28.9.2008 kl. 18:06

7 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Einn er búinn að viðurkenna sök í málinu.

Marinó G. Njálsson, 28.9.2008 kl. 19:16

8 identicon

Íslendingar eru refsiglaðir. Við teljum allar refsingar vera of vægar og alltof fáa hljóta refsingu. Betra að refsa tíu saklausum en að einn sekur sleppi. Sönnunargögn teljum við óþörf ef allir eru sannfærðir um sekt. Og ákæra á að nægja til sakfellingar.

sigkja (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 00:10

9 identicon

Í málum þar sem ekki sannast hver er ökumaður er það eigandi bifreiðarinnar sem ber sökina.

Það er hinsvegar ætti að kæra þá alla og dæma fyrir að halda aftur af upplýsingum og tefja rannsókn málsins.

Jafnvel spurning um að kæra þá líka fyrir tilraun til manndráps af gáleysi.  Láta þá svitna vel undir kærum og þá kannski segja hinir 3 frá hver var að keyra og hægt verður að draga hann til saka.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1678126

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband