Leita í fréttum mbl.is

Danir vinna Þjóðverja 27-21

Danir eru yfir í hálfleik 15 -12 eftir að Þjóðverjar byrjuðu betur.  Helstu markatölur í leiknum eru þessar (Danmörk talið fyrst):

Fyrri hálfleikur:

0-1, 1-3, 3-3, 4-3, 4-4, 4-5,6-6, 7-8, 9-9, 12-9, 13-10, 14-11, 15-12.

Síðari hálfleikur:

16-12, 16-13,16-14, 17-15, 18-15, 18-16, 18-17 (15 mínútur eftir), 20-17 (10 mínútur eftir), 22-17 (aðeins fimm þýsk mörk í síðari hálfleik!!!), 22-19 (5 mínútur eftir), 23-21, 24-21 (og lítið eftir), 25-21 (2 mínútur eftir og heimsmeistararnir á leiðinni heim!), 26-21, 27-21.

Danir vinna og taka 2. sætið í riðilinum.  Ísland í 3. sæti og mætir Pólverjum eða Frökkum.

Heimsmeistarar Þjóðverja eru úr leik.

Lokastaðan í riðlinum

Kórea 6 stig

Danmörk 6 stig

Ísland 6 stig

Rússland 5 stig

Þýskaland 5 stig

Egyptaland 2 stig

Svo virðist sem Þjóðverjar hafi hreinlega sprungið eða gefist upp.  Jensen og Boesen skora 8 mörk hvor fyrir Dani, sem vinna Þjóðverja enn einu sinni.  Það er eins og Danir hafi eitthvað tak á þeim þýsku.

Nú er bara að bíða eftir úrslitum úr leik Frakka og Pólverja.  Ég er ekki viss um að ég finni hann á netinu.Wink


mbl.is Ýmsir möguleikar hjá íslenska landsliðinu á ÓL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég get ekki séð að Ísland geti lent í öðru sæti aðeins fyrsta eða 3ja

Maggi (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 11:57

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ísland lendir í 2. sæti ef Danir vinna Þjóðverja með minna en 6 marka mun. Þá enda Kórea, Ísland og Danmörk öll með 6 stig.  Kórea er með bestan árangur í innbyrðisviðureignum og vinnur riðilinn, Ísland verður í 2. sæti með annað hvort betri markamun eða fleiri mörk skoruð verði markamunur sá sami.

Ísland lendir í 1. sæti verið jafnt hjá Þjóðverjum og Dönum. Þar sem þá verða Kórea, Ísland og Þýskaland öll með 6 stig, en Ísland er með besta stöðu úr innbyrðisviðureignum.  Er með 3 mörk í plús.  Þjóðverjar verða í 2. sæti með jafna markatölu og Kórea í 3. sæti með 3 mörk í mínus.

Ísland lendir í 3. sæti vinni Þjóðverjar eða Danir vinna með 6 marka mun eða meira.  Vinni Þjóðverjar komast þeir í 7 stig og vinna riðilinn, Kórea verður í 2. sæti á innbyrðisviðureign við Ísland og Ísland í 3. sæti.  Vinni Danir með 6 mörkum eða meira, þá taka þeir 2. sæti á betri markamun.

Marinó G. Njálsson, 18.8.2008 kl. 12:13

3 identicon

Hvar fylgist þú með þessum leik dana og þýskalands?

Törvi (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 12:16

4 identicon

Þetta er flott. Eini staðurinn þar sem hægt er að fylgjast með stöðunni í leiknum.

Vigfús (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 12:32

5 identicon

Þetta er frábær þjónusta hjá þér!

Gummi Daða (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 12:33

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég fylgist með á jp.dk og dr.dk

Marinó G. Njálsson, 18.8.2008 kl. 12:35

7 identicon

Hér er bein útsending, velja kassa 3 að neðan. Frakkar 1 marki yfir

http://www.eurovisionsports.tv/olympics/

Tryggvi (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 81
  • Sl. sólarhring: 143
  • Sl. viku: 644
  • Frá upphafi: 1677661

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband