Leita í fréttum mbl.is

Fýlupokapólitík

Hún er orðin að nokkurs konar fýlupokapólitík pólitíkin í Reykjavík.  Núna hafa þrír meirihlutar sprungið á 10 mánuðum og orsökin virðist alltaf vera að menn hafi farið í fýlu.

Í október fóru sjálfstæðismenn í fýlu vegna þess að Björn Ingi og Vilhjálmur höfðu ákveðna skoðun á REI og hinir fengu ekki að fylgjast nægilega vel með.  Rétt eftir áramót bentu fréttamenn Ólafi F. á að það hallaði á hlut Frjálslyndra og óháðra í nefndum og þá fór hann í fýlu.  Og núna fara sjálfstæðismenn í fýlu út í Ólaf F. vegna þess að hann vinnur samkvæmt sannfæringu sinni.  Er nema von að maður velti því fyrir sér hvort reykvískir stjórnmálamenn séu svo fordekraðir af einhverjum já-bræðrakór í kringum þá að þeir kunni ekki að vinna úr ágreiningi.

Fyrir mig sem horfi á þetta úr hæfilegri fjarlægð (í Kópavogi), þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvort og þá hve lengi þessi nýi meirihluti eigi eftir að vera við völd og hver muni fara í fýlu næst.  Þessi fýlupokapólitík er svo sem ekkert einskorðuð við Reykjavík.  Við sjáum þetta um allt land.   Bara í sumar sprungu meirihlutar í Bolungarvík og Grindavík að því virðist af sömu ástæðu.  Einhver fór í fýlu út í aðila í samstarfsflokki sínum.  Hvað er að því að setjast niður og ræða málin?  Halda menn virkilega að það sé nóg að setjast einu sinni niður?  Það þarf að setjast niður vikulega eða jafnvel daglega.

Ég reikna með að Reykvíkingar séu búnir að fá nóg af sínum fýlupokapólitíkusum og þeim farsa sem hefur fylgt þeim síðustu 10 mánuði. Vonandi muna þeir eftir því í næstu kosningum, að hægt er að nota útstrikanir til að losa sig við svona fýlupoka.  Það sama á við um fólk í öðrum bæjarfélögum, þar sem meirihlutar hafa sprungið.  Málið er bara að kjósendur er alveg sérkennilegur þjóðflokkur sem hefur þann hæfileika að gleyma öllu sem gerst hefur, þegar komið er inn í kjörklefann.

Annars hefur þessi farsi í Reykjavík bara styrkt mig í þeirri trú, að breyta þarf fyrirkomulagi sveitarstjórnarmála.  Menn eiga einfaldlega að fara með völd í samræmi við atkvæðamagn.  Fái einn flokkur 60% atkvæða, þá á hann að stjórna 60% tímans, svo tekur sá næsti við.  Borgarstjóra/bæjarstjóra/sveitarstjóra á að ráða ópólitískt og eiga bara að virka sem framkvæmdarstjórar.  90-95% verkefna og útgjalda eru alveg óháð hver fer með völd og því breytast ýmis málefni ekkert við það að skipt er um þann flokk sem stjórnar.  (Spyrjið bara Reykvíkinga.)  Það hafa allir gott af því að sitja á hliðarlínunni, a.m.k. gerði það Sjálfstæðismenn í Reykjavík ákaflega auðmjúka að missa völdin í október í fyrra.  Ég held að Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi og í Kópavogi hefðu líka gott af því að víkja til hliðar.


mbl.is Gísli Marteinn: Ræktuðum illa sambandið við framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Góðar tillögur um valdahlutföll með hliðsjón af fylgi.

Hefurðu tekið eftir því Marinó að nú er álíka margir íbúar að baki hvers borgarfulltrúa eins og var að baki allrar borgarstjórnarinnar fyrir 100 árum? Fulltrúum hefur ekki fjölgað í hundrað ár þó svo að íbúafjöldi hafi hrokkið úr 8.000 íbúum í um 120.000. Á höfuðborgarsvæðinu er meðaltal íbúa á bak við hvern fulltrúa í sveitarstjórn um 3.000. Það þýddi að borgarfulltrúar hefðu þurft að vera nálægt 40 ef sama hlutfall væri í Reykjavík. Sennilega á þetta forna fyrirkomulag sinn þátt í hvers vegna stöðug stjórnarkreppa er ríkjandi í Reykjavík. Starf borgarfulltrúa er núna fullt starf en er yfirleitt aukastarf annars staðar. Þetta fyrirkomulag veldur því að erfitt kann að manna nefndir og ráð með aðalmönnum og koma á fundum.

Um þetta málefni hefi eg ritað nokkuð á heimasíðunni minni.

Bestu kveðjur

Mosi 

Guðjón Sigþór Jensson, 15.8.2008 kl. 18:16

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Það hangir meira á spýtu Reykvíkinga en t.d. hjá Húsvíkingum eða Kópavogsbúum.  Hér er ég að tala um OR, REI og fleiri stór fyrirtæki sem borgin á.   Auðvitað væri óskandi að borgarfulltrúar hefðu vit á skipulagsmálum og auga fyrir fallegum húsum.  Það væri líka gott ef þetta fólk hefði áhuga á fallegu umhverfi. 

Allt sem þessir borgarfulltrúar hugsa um er rassinn undir sjálfum sér og vinum.  Síðan er bara verið í sandkassaleik þess á milli og leyft að byggja ljótustu húskassa sem til eru.  Ljót hús, ljótt umhverfi og síðan í framhaldinu þunglynt fólk á gleðipillum.  

Björn Heiðdal, 16.8.2008 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1678166

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband