Leita í fréttum mbl.is

Hagnaður Íslandsbanka 2010 meiri en hjá Glitni 2007 þrátt fyrir mun minni efnahagsreikning

Afkomutölur Íslandsbanka á árinu 2010 eru áhugaverðar svo ekki sé meira sagt.  Mig langar að rifja upp orð stjórnarmanns bankans, sem taldi hagnað ársins 2009 vera hærri en búast mætti við eftir það.  Annað hefur komið í ljós.

Orðaval í tilkynningu bankans er ekki síður áhugavert.  Talað er um "rekstrarniðurstöðu" og að hún hafi verið "jákvæð".  Almennt er jákvæð rekstrarniðurstaða kölluð hagnaður og neikvæð niðurstaða er kölluð tap.

Íslandsbanki skilar sem sagt 29,4 milljarða kr. hagnaði fyrir rekstrarárið 2010 og það eftir skatta.  Er þetta 5,4 ma.kr. hækkun frá fyrra ári þ.e. 22,5% hækkun á milli ára.  Ekki slæmt miðað við barlóminn í fjármálafyrirtækjunum á síðasta ári.  29.4 ma.kr. er síðan 28,5% arðsemi eigin fjár, en eiginfjárhlutfall bankans hefur aldrei verið hærra eða 26,6%.  Eigið fé í árslok var svo 121,5 ma.kr.

Enn ein áhugaverð talan er stærð efnahagsreiknings sem er 683 ma.kr.

Nú af öllu þessu borgar bankinn heilar 221 m.kr. í bankaskatt, 670 m.kr. í atvinnutryggingagjald og 7,2 ma.kr. í tekjuskatt.

Berum þetta nú saman við hagnað Glitnis árið 2007:

  • Hagnaður:  27,7 ma.kr.
  • Arðsemi eiginfjár: 19,3%
  • Eigið fé: 179 ma.kr.
  • Efnahagsreikningur: 2.949 ma.kr.
  • Tekjuskattur: 6,3 ma.kr.

Já, það er merkilegt að sjá að afkoma Íslandsbanka í miðri kreppunni er ríflega 5% meiri en árið 2007, þegar allt virtist ennþá vera í lukkunnar velstandi.

Hagnaður fyrstu tveggja heilu áranna í sögu Íslandsbanka hins þriðja er alls 53,7 ma.kr.  Höfum í huga að bankinn var stofnaður með 65 ma.kr. hlutafjárframlagi, þannig að eigið fé hefur því aukist um 82,6% á þessum tveimur árum vegna þessa hagnaðar.  Geri aðrir betur.  Er vert að óska Birnu Einarsdóttur og hennar fólki til hamingju með þetta.

Hamingja lántaka bankans ætti greinilega ekki að vera eins mikil.  Hagnaðurinn er jú að talsverðu leiti byggður á því að bankinn tók yfir lánasöfn með miklum afslætti en hefur krafið viðskiptavini sína um mun hærri upphæð.  Er það þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi dæmt gengistryggingu ólöglega verðtryggingu, enda bætti Hæstiréttur lögbrjótunum tjón sitt að verulegu leiti.

Í ljósi afkomu bankans, þá skora ég á Birnu Einarsdóttur og stjórn bankans að sýna gott fordæmi og takmarka endurútreikning gengistryggðra lána og þeirra lána sem falla undir breytingu frá því í  desember á lögum nr. 38/2001 við 1.1.2008, þ.e. láta stöðu höfuðstóls lánanna í lok árs 2007 halda sér og framkvæma endurútreikninginn bara á gjalddaga og höfuðstólinn eftir þann tíma.  Bankinn hefur greinilega borð fyrir báru til að gera þetta.  Jafnframt skora ég á bankann að setja þak á vextina, þannig að þeir fari aldrei yfir 10% í endurútreikningunum frá 1.1.2008 til dagsins í dag.

Íslandsbanki hefur greinilega fengið góðan heimanmund frá eigendum sínum í formi ríflegs afsláttar á yfirfærð lánasöfn.  Nú er kominn tími til að viðskiptavinir bankans fái að njóta þessar heimanmundar í meira mæli en hingað til.


mbl.is 29,4 milljarða hagnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Jörundsson

Blessaður Marinó

Ég vil benda þér á reginmisskilning þinn !

Það eru til tvennskonar reiknireglur. Þessar sem við notuð og svo þessar sem Björgólfur var skammaður fyrir að benda á ... þessar með sýndarpeningunum sem fara til peningahimna.

Strákgreyið var bara að segja sannleikann.

Hagnaðurinn sem þú talar um er í okkar veruleika hagnaður en í heimi fjármálafyrirtækja er hagnaður einungis hagnaður meðan viðkomandi fjármálafyrirtæki situr eitt að honum, ef fleiri eiga að njóta hans en útvaldir færist þetta sjálfvirkt undir liðinn tjón eða kostnaður.

Vona þetta leiðrétti þann misskilning þinn að fjármálafyrirtæki séu almennt af þessum heimi.

kv

Hlynur

Hlynur Jörundsson, 3.3.2011 kl. 16:43

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Marinó,

Tek undir með Hlyn, þú ert eitthvað að misskilja þetta enda er þetta jákvæð rekstrarniðurstaða en ekki hagnaður

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 3.3.2011 kl. 17:34

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Það er gott að menn hafi húmor fyrir þessu.

Marinó G. Njálsson, 3.3.2011 kl. 18:12

4 Smámynd: Hlynur Jörundsson

En svona í fúlustu alvöru.

Það hljómar geðveikislega en svo virðist sem starfsmenn fjármálafyrirtækja séu svo uppteknir við talnaleikina sína að þeir geri ekki greinarmun á talnaleikjum og raunveruleika.

Ef afkomutölurnar eru réttar og það sem lagt er til grundvallar eru raunveruleg ekki ímynduð verðmæti þá geta þeir léttilega komið til móts við viðskiftavini sína, eins og þú réttilega bendir á.

En þeir munu ekki gera það og spurningin sem við verðum að spyrja okkur er þar af leiðandi .... hvað vakir eiginlega fyrir þeim.

Heilbrigðir, sanngjarnir viðskiftahættir eða eitthvað annað ?

Hlynur Jörundsson, 3.3.2011 kl. 19:19

5 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Marinó

Spurningar vakna um hvort þetta séu raunverulegar tölur.  Ég bara treysti einfaldlega ekki þessum fyrirtækjum til þess að gefa upp réttar tölur!!!

Maður verður að geta haft húmor fyrir þessu!;)

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 3.3.2011 kl. 19:48

6 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Þetta eru mjög varhugaverðar tölur og ber að taka þeim með miklum fyrirvara. Stjórnendur bankans eru hálfgerir aular og fer þar fremst í flokki Birna Einarddóttir sem veit varla út á hvað bankastarfssemi gengur.

Guðmundur Pétursson, 3.3.2011 kl. 20:32

7 identicon

það er því miður lítil von til þess að bankinn láti viðskiptavini sína njóta þess að arðsemi eiginfjár séu tæp 20%. Til þess eru samtök viðskiptavina, s.s. Neytendasamtökin of veikburða. Vilji stjórnenda stendur ekki til þess. Boltinn er hjá stjórnvöldum. Þau hafa vald til að skattleggja eða taka gjöld. Er raunveruleg samkeppni í bankaþjónustu? Hvað segir Samkeppniseftirlitið?

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 21:54

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sex orð um endurreisn bankanna: Blása lofti aftur í sömu blöðruna.

Guðmundur Ásgeirsson, 4.3.2011 kl. 02:35

9 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Góður árangur. Reyndar er krónan líklega um 20% verðminni 2010 en 2007.  Íslandsbanki virðist vera öflugastur af gömlu bönkunum eftir hrun.

Þorsteinn Sverrisson, 4.3.2011 kl. 17:47

10 Smámynd: Offari

Nú er ég farinn að heyra sögur af því að Íslandsbanki sé farinn að greiða þeim sem borguðu of mikið af lánum til baka.

Offari, 5.3.2011 kl. 14:45

11 identicon

Fjármálafyrirtæki eru greinilega ekki í klemmu, þegar þau geta borgað bankastjóra 5 miljónir á mánuði,

gaman væri að vita hvort bankasýslan eigi mann í stjórn Aríon banka.

S. Þórarins (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 20:10

12 Smámynd: Björn Birgisson

Grobbtölur í anda 2007. Ekkert flóknara en það. Verum á varðbergi. Eðli bankastarfemi er alltaf að ljúga sér í hag. Það ættum við að hafa lært. Aldrei að trúa tölum frá banka. Aldrei.

Björn Birgisson, 5.3.2011 kl. 22:56

13 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég verð að bæta hér inn tilvísun í frétt á visir.is:

Hagnaður Arion banka af endurmati á virði lána nam 14 milljörðum króna. Þar af renna 12 aftur til gamla bankans, Kaupþings, samkvæmt samkomulagi við skilanefnd og kröfuhafa við kaup og tilfærslu lánasafnsins. Samningar náðust ekki um verð í október árið 2008 þar sem erlendu kröfuhafarnir töldu endurheimtur verða betri en búist var við. Niðurstaðan var sú að ef endurmat á ákveðnum lánum myndi hækka rynni 80 prósent af endurheimtum aftur til skilanefndar. Tveir milljarðar króna sitja því eftir í bankanum nýja.

(Ég held að vísu að 20% af 14 sé nær 3 en 2, en svona fer nú stærðfærðikunnáttu hrakandi.)

Marinó G. Njálsson, 10.3.2011 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband