Leita í fréttum mbl.is

Sérkennileg gagnrýni á Byggðastofnun - Er afnám kvóta það sem koma skal?

Undanfarna daga hefur verið upp gagnrýni á Byggðastofnun, þar sem stofnunin mun tapa háum fjárhæðum eftir að  veiðar á úthafsrækju voru gefnar frjálsar.  Gagnrýnin byggir á því að stofnunin hafi selt rækjukvóta í eigu stofnunarinnar með veði í kvótanum.  Nú þegar kvótinn er verðlaus, þá sé Byggðastofnun búin að tapa háum fjárhæðum.

Það er rétt, að samkvæmt bókhaldi stofnunarinnar eru háar upphæðir tapaðar.  En það er önnur hlið á þessu.  Ef Byggðastofnun hefði haldið kvótanum og beðið eftir að kaupandi kæmi sem gati lagt út fyrri kvótanum eða lagt fram önnur veð, þá ætti stofnunin kvótann líklegast ennþá.  Kvóta sem núna væri verðlaus.

Spurningin er því:  Hvort fór Byggðastofnun betur út úr því að selja kvótann gegn veði í honum og fá hugsanlega afborganir í stuttan tíma eða að sitja á kvótanum og fá ekkert fyrir hann?  Staðreyndin er nefnilega að kvótinn er jafn verðlaus í eigu Byggðastofnunar og í eigu útgerðar sem ekkert getur greitt fyrir hann.  Afskriftin hjá Byggðastofnun er því nokkurn veginn jafnmikil hvort sem stofnunin hélt í kvótann eða seldi hann aðila sem núna situr uppi með verðlausan kvóta.  Svo er mögulegt að fyrirtækið sem keypti kvótann veiði langt umfram kvótann og haldi áfram að greiða af láninu.

Vilji menn finna einhvern sökudólg í málinu, þá verður að leita annað hvort til þess sem gerði kvótann verðlausan eða þess sem átti kvótann áður en Byggðastofnun eignaðist hann.  Vandamálið er ekki tengt síðustu sölunni, heldur því hvernig kvótinn komst í hendur stofnunarinnar og að Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, gaf veiðarnar frjálsar.

Byggðastofnun er ekki hafin yfir gagnrýni og hefur vafalaust gert ýmislegt í gegn um tíðina sem er athugunarvert.  Í þessu tilfelli, þá hefur stofnunin verið sett í stöðu, af sjávarútvegsráðherra, sem kostar stofnunina og skattgreiðendur háar upphæðir.  Það er ekki við hana að sakast og ekki er að sjá að aðferðir hennar við sölu kvótans hafi á nokkurn hátt verið á annan veg en í sambærilegum viðskiptum á undanförnum árum út um allt í sjávarútvegnum.

Tekið skal fram, að ég er ekki að gagnrýna Jón Bjarnason út af hans ákvörðun.  Hef ég engar forsendur til þess.  Það er vitað að allar ákvarðanir stjórnvalda geta haft kostnað í för með sér.  Fyrirkomulag kvótamála í sjávarútvegi er þannig, að sé hróflað við kerfinu, þá mun einhver tapa og annar hagnast.  Við því er nákvæmlega ekkert að gera.  Núna er staðan líklegast sú, að það eru fjármálastofnanir sem tapa og kvótalausir sem græða.  Eigið fé útgerðafyrirtækja er í mörgum tilfellum byggt á verðmæti óveidds afla, þ.e. fuglar í skógi ekki í hendi.  Menn treysta á að kerfið haldist óbreytt og aflaheimildir aukist með aukningu kvóta.  Nú hafa eigendur úthafsrækjukvóta komist að því að heimurinn er hverfull.  Spurningin er hvort aðrir kvótaeigendur eigi að búa sig undir það sama?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Vandamál Byggðastofnunar, hefur alltaf verið að hún er meira rekin fyrir tilverknað pólit. þrýstings sem stuðningsstofnun við staði á landsbyggðinni er eiga undir högg að sækja heldur en sem "hard core" lánastofnun.

Lánin eru með öðrum orðum veitt, ekki vegna þess að þessi verkefni eru þau hagkvæmustu í boði á landsbyggðinni, heldur til þess að halda þessu og hinu byggðalagi gangandi nokkur ár í viðbót.

----------------------

Regluleg lánatöp eru eðlileg afleiðing þess, að lánin hafa í reynd verið meira í ætt við styrki.

Það þarf einfaldlega að ákveða hvort Byggðastofnun er að veita styrki eða lán, eða millistig nokkur konar víkjandi lán - sem hefur verið reyndin.

Punkturinn er, að það þarf að móta stefnuna og síðan fylgja henni. Ef lánin eru millistig á milli styrkja kerfis og að vera lán, þ.e. víkjandi lán. Þá er rétt að skýr stefna um það verði mótuð, í stað þessa moðreiks sem alltaf er í gangi, að í orði kveðnu eru þetta lán skv. hefðbundnum kjörum en í reyndinni eru þau víkjandi.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 9.8.2010 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1678124

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband