Leita í fréttum mbl.is

Seðlabankastjóri með skáldskap í sjónvarpsfréttum og gerir lítið úr aðallögfræðingi sínum

Það var merkilegt viðtal við Már Guðmundsson, seðlabankastjóra, í sjónvarpsfréttum.  Fyrst færir hann í stílinn, þegar hann segir að umræðan hafi verið á fullu í þjóðfélaginu um þessi mál í maí í fyrra.  Síðan gerir hann lítið úr aðallögfræðingi Seðlabankans og gefur í skyn að skoðun hans sé harla ómerkileg.

Skoðum fyrst þetta með umræðuna sem var á fullu.  Ég er í dag búinn að kemba þá vefmiðla sem bjóða upp á umræðu.  Einnig skoðaði ég hvort einhver fréttaflutningur hafi verið um þetta mál á þessum tíma.  Niðurstaða mín er sú, að ég hafi fjallað um þetta á blogginu mínu, Guðmundur Ásgeirsson á sínu og hugsanlega einhverjir örfáir í viðbót.  Frétt um þetta birtist á vef Hagsmunasamtaka heimilanna 17.4.2009 og AMX.is vefurinn vísaði í hana sama dag.  Elsta fréttin sem ég fann á vef Morgunblaðsins var frá 24. september 2009.  Á Eyjunni var elsta fréttin frá 12. febrúar á þessu ári.  Kastljós Sjónvarpsins fjallaði um þetta í byrjun september [leiðrétting:  fyrst var rætt um þetta 5. maí].  Lára Hanna Einarsdóttir, sem mikil hefur fjalla um þetta, var með fyrstu færsluna í september 2009.  Björn Þorri Viktorsson, lögmaður, tók málið upp og sendi þingheimi bréf 28. maí 2009, þ.e. heilum 10 dögum eftir að aðallögfræðingur Seðlabankans ritaði sitt álit.  Björgvin Halldór Björnsson, lögmaður, fékk birta grein í Morgunblaðinu 15. ágúst 2009.  Nei, staðreyndin er sú að orð Más eiga sér engin stoð í raunveruleikanum.  Annað hvort er hann að reyna að afvegaleiða umræðuna viljandi eða hann er að bulla.  Hafi einhver hjá Seðlabankanum talið honum trú um að umræðan hafi verið í fullum gangi, þá er Már nokkur vorkunn, en höfum í huga, að hann bjó í Basel í Sviss á þessum tíma og var varla að fylgjast grannt með því hvort einhverjir bloggarar væru að kvabba um hugsanlegt ólögmæti gengistryggðra lána.  Hafi umræðan átt sér stað, þá átti hún sér stað innan mjög þröngra hópa sem voru með andstæða skoðun.  Annar hópurinn var í kringum okkur sem stöndum í hagsmunabaráttu fyrir hönd skuldsettra heimila landsins og hinn hugsanlega innan fjármálageirans.  Það voru engin skoðanaskipti á milli þessara hópa, eins og svo nauðsynlega hefði þurft að vera og minnisblað Seðlabankans hefði getað stuðlað að.

Ég get aftur sagt Má það, að ég fylgdist mjög vel með umræðunni, vegna þess að það var ég sem kom henni af stað með færslu hér 17. apríl 2009 í kjölfar félagsfundar Hagsmunasamtaka heimilanna kvöldið áður.  Ég hefði tekið eftir því og gripið það á lofti, ef einhver umræða hefði átt sér stað á opinberum vettvangi.  En staðreyndin er sú, að á þessum tíma höfðu menn meiri áhuga og áhyggjur af kosningum og stjórnarmyndun, en hvort gengistrygging væri lögleg.

Það er þrautreynd aðferð að kasta fram tilhæfulausum staðhæfingum í þeirri von að engin geti hrakið hana.  Seðlabankastjóri er sekur um það í þessu tilfelli.  Málið er að hann var gripinn í bólinu.  Það slæma er að fréttamaðurinn, sem ræddi við hann, lét hann komast upp með þetta, vegna þess að hann vissi líklega ekki betur sjálfur eða trúði því ekki að seðlabankastjóri færi með skáldskap í sjónvarpsviðtali.  Þetta krafs Más er honum og Seðlabankanum til minnkunar.  Að fara með svona fyrir þjóðina myndi einhvers staðar í heiminum kalla á afsögn, en við búum á Íslandi og hér er talið eðlilegur hlutur að mennfæri í stílinn og komist upp með það.

Hitt atriði, sem Már minntist á, þ.e. að álit aðallögfræðings Seðlabankans hafi ekki haft neina vigt, finnst mér ekki síður alvarlegt.  Ef ég væri þessi aðallögfræðingur, þá myndi ég senda inn uppsagnarbréf á mánudag.  Eins og ég segi í annarri færslu hér í dag, þá á virðing seðlabanka að vera slík, að orð starfsmanna hans eiga að vera talin ótvíræð og hafin yfir vafa.  Það er greinilega ekki skoðun núverandi seðlabankastjóra á þessum starfsmanni sínum.  Hann gerir lítið úr aðallögfræðingi sínum, eins og lögfræðingurinn hafi ekkert vægi.  Svo ýkir hann að Seðlabankinn hafi leitað margra álita og þess vegna skipti álit aðallögfræðingsins ekki máli.  Ég held að Már ætti að lesa svar Seðlabankans til nefnda Alþingis.  Þar kemur skýrt fram að leitað var eins álits, þ.e. til lögmannsstofunnar LEX, og að aðallögfræðingur Seðlabankans hafi skrifað minnisblað, þar sem tekið er undir niðurstöðu álitsins um að gengistrygging lána kynni að vera ólögmæt.

Ég átta mig alveg á því af hverju Már er að þessu.  Þetta er kunnugleg aðferð, þegar menn hafa verið teknir með allt niður um sig.  Menn reyna að gera lítið úr klúðrinu.  Segja það ómerkilegt og ekki skipta máli.  Þá reyna með að ljúga til um staðreyndir.  Á mánudaginn getum við síðan búist við því að einhverri smjörklípu verði hent í þá sem gagnrýna Seðlabankann, næst verður reynt að þegja málið af sér og vona að það gangi yfir og svo loks þegar það allt bregst, þá kannski mun Seðlabankinn viðurkenna að hann hafi kannski átt að bregðast öðruvísi við.  En það er undir fjölmiðlum komið hvort þeir láta Seðlabankann komast upp með þetta.

Mér finnst það fráleitt að mikilvægt lögfræðiálit og minnisblað aðallögfræðings Seðlabanka Íslands sé afgreitt eins og ómerkilegur skeinispappír.  Mér finnst ennþá verra að Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sé að reyna að snúa sig út úr klúðri bankans.  Ég vil ekki nota orðið lygar, þar sem hugsanlega veit Már ekki betur, en það þýðir að starfsmenn bankans eru að misnota hann.  Kjarninn í málflutningi Más er það sem kom fram í yfirlýsingu Seðlabankans í gær og eins og hef bent á, var sú yfirlýsing ekki sannleikanum samkvæmt. 

Er þetta virkilega leið Seðlabankans til að ávinna sér traust?  Trausts sem hann er búinn að glata eftir ótrúleg mistök bankans á undangengnum árum.  Kannski vill Seðlabankinn ekki ávinna sér trausts á ný.  Kannski er honum alveg jafn skítsama um orðspor sitt núna og áður.  Ég held að Seðlabankinn vilji öðlast trausts þjóðarinnar og vil því gefa honum heilráð um hvernig hann geti byrjað að vinna að því: 

Seðlabankinn á að viðurkenna að bankanum hafi orðið á mistök við að vekja ekki athygli á lögfræðiáliti LEX lögmannsstofu og minnisblaði aðallögfræðings Seðlabankans.  Hann á að biðjast afsökunar á þeim mistökum.  Loks á hann að birta álitið og minnisblaðið án frekari málalenginga.

En skömmin er fleiri en Seðlabankans þar sem aðrir sátu á upplýsingunum.  Þessir aðilar geta ákveðið að fara heiðarlegu leiðina og sagt rétt frá eða farið þá óheiðarlegu og skáldað eitthvað bull.  Forvitnileg er að vita hvor leiðin verður farin.  En hver sem niðurstaðan er, þá held ég að aðallögfræðingi Seðlabankans hafi verið hafnað.  Hans áliti er ekki treyst.  Hann á því ekkert erindi í stöðu sinni og eðlilegt er að Seðlabankinn leiti sér að nýju aðallögfræðingi, sem yfirstjón bankans ber traust til.  Það er ekki bara að álit hans hafi verið hunsað í fyrravor af Seðlabankanum og viðskiptaráðuneytinu, heldur bítur Seðlabankinn og seðlabankastjóri höfuðið af skömminni með því að gera lítið úr honum opinberlega núna til að verja mistök sín.  Raunar ætti ég að segja "henni", þar sem aðallögfræðingur Seðlabankans er kvenmaður.  Er það kannski ástæðan fyrir því að aðallögfræðingnum er ekki treyst?  Það hlýtur a.m.k. að vera undarlegt að lesa í yfirlýsingu bankans og hlusta á yfirmann sinn lýsa því yfir að minnisblaðið sem samið var, hafi verið einskis virði.  Ég hef heyrt léttvægari vantraustsyfirlýsingu en þetta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er með algerum ólíkindum eins og þú bendir á. Greinilegt að Seðlankastjóri heldur að hann geti komist frá þessu með því að mæta þjóðinni af hroka.  Því miður er þetta sorglegt dæmi um  alvarlega vanhæfni stjórnanda Seðlabanka og vanhæfni viðskiptaráðherra. Geta þessir menn setið í embættum?

Jón Magnússon, 7.8.2010 kl. 22:35

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gengistryggðu lánin eru að mínu áliti afar svartur blettur á íslenska fjármálakerfinu eins og það leggur sig.

Vitneskjan um ólögmæti þessara lána virðist hafa verið til staðar innan kerfisins allan tíman. Lánin eru veitt og meðan gengir er uppi, sleppur þetta til, eins og sagt er.

Síðan fellur gengið - fyrst hratt - svo ofsa hratt og lánin hækka á ljóshraða.

Fyrirtæki og fjölskyldur fara í þrot - fjöldi missir störf - heimili og fjölskyldur sundrast - þjáningar tugþúsunda eru gríðarlegar - fólk tekur líf sitt.

Hver var og er tilgangurinn með þessu öllu - eru peningalegar eignir virkilega svona mikils virði?

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.8.2010 kl. 23:47

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Hólmfríður, þ.e. ljótt að segja það. En vanalega þegar gruggugir hlutir gerast á hæstu stöðum, atburðarás sem ekki virðist þjóna neinum skynsömum tilgangi, þá þýðir það annað af tvennu:

A)Fífl og bjánar sem vita ekki hvað þeir eru að gera, eru við stjórnvölinn.

B)Einhver er vísvitandi að stýra málum einhverjum þröngum en vel tengdum hópi í hag.

------------------------

Ég hallast frekar að B, þannig að við þurfum þá að átta okkur á, hverjir eru að græða á ástandinu.

Þá vitum við hver óvinurinn er.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.8.2010 kl. 00:14

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Marínó - Már Seðlabankastjóri er nú búinn að vinna sér inn gilda ástæður til að þess megi nú með málefnalegum hætti krefjast, að hann segi tafarlaust af sér.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.8.2010 kl. 00:15

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég get ekki betur séð, en að Már Guðmundsson, sé nú búinn að búa til málefnalegar ástæður þess, að sú krafa komi fram, að hann segi af sér.

"Á þessum tíma stóðu samningar við kröfuhafa bankanna sem hæst og endurskipulagning þeirra til framtíðar lá fyrir dyrum. Þrátt fyrir það ákvað Seðlabankinn að halda þessu lögfræðiáliti leyndu fyrir bönkum og skilanefndum bankanna. Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri sem tók við þeirri stöðu þremur mánuðum síðar, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að Seðlabankinn hefði ekki átt að stimpla þetta lögfræðiálit sem hið eina rétta."

Sú ákvörðun að halda því áliti leyndu, er gríðarlega ábyrgðalaus. En, þeir sem voru að semja við hina erlendu aðila hefðu haft þá vitneskju í höndum, þá hefðu þeir vitað að umtalsverð meiri óvissa væri um endanlegt virði lánapakkanna þeirra verð sem þeir voru um að semja. Aukin óvissa þíðir lægri verð.


Þannig, að Már hafði af þjóðinni milljarða tugi a.m.k. með því að halda frá upplýsingum er hefðu auðveldað embættismönnum okkar er voru að semja við hina erlendu aðila að krefjast lægri verða.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.8.2010 kl. 00:38

6 Smámynd: Billi bilaði

Merkilegt hvað það getur verið langt á milli bræðra í virðingarmati þjóðarinnar.

Billi bilaði, 8.8.2010 kl. 01:48

7 Smámynd: Billi bilaði

Fór aðeins að grufla, og rakst þá á þetta:

„Og mér var sérstaklega minnisstætt að þegar fundurinn er að hefjast þá snýtir Össur sér og segir yfir fundarborðið að hann hafi bara akkúrat ekkert vit á bankamálum.“

Sigríður Logadóttir, lögfræðingur Seðlabankans, um örlagaríkan fund um yfirtöku Glitnis.

Billi bilaði, 8.8.2010 kl. 01:58

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir góðan pistil Marinó.

Ágúst H Bjarnason, 8.8.2010 kl. 07:13

9 identicon

Mér hefði þótt mjög óeðlilegt ef að seðlabankinn eða seðlabankastjóri hefði verið að gefa eitthvað út um lögmæti þessara lána. Það er ekki hlutverk seðlabankans.

Bjöggi (IP-tala skráð) 8.8.2010 kl. 13:11

10 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Takk fyrir þennan pistil Marinó, ég hvet þig eindregið til að senda hann til fjölmiðlana, sérstaklega fréttastofu RUV og Stöð2.

Gunnar Heiðarsson, 8.8.2010 kl. 16:54

11 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Gunnar, ég verð í fréttum Stöðvar 2 á eftir.

Marinó G. Njálsson, 8.8.2010 kl. 17:21

12 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Er ekki málið það að gamli "komminn" er búinn að komast að því, að hann hafi fengið loforð um að fá meira í launaumslagið, með þessari lýgi. Hann er að setja sig á sama stall og sumir. Því meiri lýgi og órói, því meiri laun.  Æran hefur verðmiða!! Það er einskins svifist.

Eggert Guðmundsson, 8.8.2010 kl. 20:34

13 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mér hefur verið bent á að mér yfirsást Kastljóssþáttur 5. maí 2009, þar sem Björn Þorri Viktorsson reifar sín sjónarmið um lögmæti gengistryggðra lána.  Biðst ég afsökunar á þeirri yfirsjón.  Hún breytir því samt ekki að umræðan var ekki komin á fullt.  Hún var takmörkuð við þröngan hóp og opinberir aðilar tóku engan þátt í henni á opinberum vettvangi.

Marinó G. Njálsson, 9.8.2010 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1678161

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband