Leita í fréttum mbl.is

Rangfærsla í úrskurði Neytendastofu

Það er ein ákaflega meinleg rangfærsla í úrskurði Neytendastofu.  Þessi rangfærsla er svo meinleg að hún gerir niðurstöðuna hálf hjákátlega.  Bílasamningar SP-fjármögnunar eru þvi marki brenndir að tekið er lán í SP-einingum.  Þannig er í tilfelli þess samnings, sem hér um ræðir, helmingur lánsins í SP5-einingum og hinn í verðtryggðum íslenskum krónum.  Þessar SP5-einingar eru búnar til af SP-fjármögnun og eiga ekki skylt við íslenskar krónur eða erlenda gjaldmiðla, þó hafi þær vissulega virðistengingu við mynthlutföll og gengi undirliggjandi gjaldmiðla í íslenskum krónum.

Gengi SP5-eininganna er misjafnt eftir því hvenær lántaki tekur lán.  Það veltur á gengi undirliggjandi gjaldmiðla, sem SP5-einingin er miðuð við, á lántökudegi.  Hún er þó ekkert frekar í erlendri mynt, en að inneign í íslenskum hlutabréfasjóði með eignir í erlendum hlutafélögum er í þeirri mynt sem hlutafélögin eru skráð í.  Eigi ég eign í viðkomandi hlutabréfasjóði, þá er hún í íslenskum krónum.  Á sama hátt er SP5-einingin í íslenskum krónum og lánið því í íslenskum krónum.  Það er ekkert erlent við þetta lán annað en að SP5-einingin er með fót í myntkörfu, sem núna hefur verið dæmdur ólöglegur af Hæstarétti.  Að slík eining sé notuð gerir lánið ekki erlent frekar en notuð hefði verið ávaxtakarfa eða ostakarfa.

Mér finnst merkilegt að lesa þennan úrskurð Neytendastofu.  Það er eins og stofnunin leggi sig fram við að réttlæta framsetningu SP-fjármögnunar á upplýsingum og efni samnings.  Það er skýrt í neytendaverndartilskipun ESB og 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga að óskýrleika í samningum eigi að túlka samning neytenda í hag. Neytendastofa leggur sig aftur alla fram við að brjóta gegn þessum lagabókstaf og túlka allan vafa lánafyrirtækinu í hag.

Úps, ég gleymdi því að Neytendastofa má ekki fjalla um neytendavernd í íslenskum lögum.  Já, svo fáránlegt sem það er, þá fellur innleiðing neytendaverndartilskipunar ESB í 36. gr. laga nr. 7/1936 og lögfest var með lögum nr. 14/1995 ekki undir Neytendastofu!!!  Er þetta ein af þessum fáránlegu vitleysum sem er að finna í íslenskum lögum og Alþingi verður að breyta ekki síðar en á haustþingi.


mbl.is SP-Fjármögnun braut lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

SP5 myntkarfan er í reynd afleiða sem leidd er af gengi undirliggjandi gjaldmiðla. SP-Fjármögnun hefur hinsvegar aldrei haft starfsleyfi til afleiðuviðskipta, né heldur með framvirka samninga, gengistryggð verðbréf, eða gjaldeyri. Lagatæknileg skilgreining er því aukaatriði, fyrirtækinu var aldrei heimilt að stunda þessi viðskipti hvað sem orðhengilshætti líður. Við brotum á starfsleyfisskyldu fjármálafyrirtækja liggja refsingar allt frá sektum að tveggja ára fangelsisvist.

Eftirlitið á að vera í höndum FME, en því miður hefur stofnunin kúkað svo illa á sig í þessum málum að það er beinlínis orðið vandræðalegt að fylgjast með því. Allar hugmyndir um hvernig hægt sé að koma þessum glæpamönnum úr umferð væru vel þegnar.

Guðmundur Ásgeirsson, 10.8.2010 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 687
  • Frá upphafi: 1677709

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband