Leita í fréttum mbl.is

Fráleitur Gylfi - 18. gr. á eingöngu um oftekna vexti og endurgjald

Það er merkilegt hvað Gylfi Magnússon getur haldið áfram að vísa rangt í 18. gr. laga nr. 38/2001.  Löggjafanum datt nefnilega ekki annað í hug, en að vextir og endurgjaldið væri oftekið og því væri vikið til hliðar með dómi.  Þannig skapaðist krafa á kröfuhafann vegna oftekinna vaxta eða endurgjalds (lesist höfuðstólsafborgun), ekki öfugt.  18. gr. á ekki við lántakann, enda er ekki hægt að refsa lántakanum fyrir að lánveitandinn hafi boðið honum góð kjör.

Síðan vil ég vekja athygli enn og aftur á 36. gr. laga nr. 7/1936.  Með henni voru færð í lög ákvæði um neytendavernd.   Greinin er innleiðing á neytendaverndar ákvæðum tilskipunar 13/1993/EBE (eða hvernig þetta er skrifað).  Hún verndar neytendur fyrir ósanngjörnum samningsákvæðum en jafnframt segir að rísi ágreiningur um túlkun samnings, þá skuli túlkun neytanda gilda.


mbl.is Fjarstæðukennd niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gylfi heldur áfram að steypa tóma þvælu í örvæntingu sinni. Það sem áður var frábær dómur er eftir eitt samtal við AGS orðið að skelfilegri niðurstöðu sem "engum" hafði dottið í hug.

Mér líður eins og ég sé að horfa á knattspyrnuleik þar sem búið er að sóla varnarmann sundur og saman. Þegar boltinn er á leiðinni í markið hendir hann sér á eftir honum og ver með höndum á marklínu, snýr sér svo við og hrópar: "Það verður að breyta reglunum". Áhorfendur í stúkunni og heima í stofu, sem vita mæta vel að búið er að skora, leggja hendur á andlit og segja: "Guð minn almáttugur".

Þetta er einfaldlega orðið vandræðalegt.  Gylfi skuldar okkur skýringu á því hvernig stjórnvöldum tókst að koma 100 milljarða tjóni yfir á almenning algerlega að óþörfu.  Gylfi Magnússon á að segja af sér.

Benedikt Helgason (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 19:35

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Marinó, það er eins og að Ísland sé að spila fótboltaleik þar sem dómararnir dæmi skv. reglum frá Ameríska fótboltanum (ruðningi) eða einhverri annarri gersamlega óskyldri íþróttagrein. 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 25.6.2010 kl. 20:16

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mér fannst eiginlega best, þegar hann sagði að ekkert væri að marka lögspekinga.  Það væri Hæstiréttur sem hefði síðasta orðið.  Nú er Hæstiréttur nýbúinn að eiga síðasta orðið, en vegna þess að hagfræðingurinn er ekki læs á lög, þá var þetta ekki síðasta orðið.

Gylfi hefur gert margt gott, en núna hefur hann ratað inn á ranga slóð og í staðinn fyrir að viðurkenna mistök sín og snúa af leið, þá þrjóskast hann við.  Jóhanna og Steingrímur eru líklegast fegin að hann tekur athyglina af þeim og að þau virðast ekki vera að gera nokkurn skapaðan hlut.  Hvar er Jóhanna og hvað er hún að gera?  Er hún veik?  Það var flott að jafna rétt samkynhneigðra, en hvað með rétt lántaka? Erum við skítugu börn Evu núna?

Marinó G. Njálsson, 25.6.2010 kl. 23:10

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ein spurning Marinó. Getur 36. gr. laga nr. 7/1936  átt við um viðskipti tryggingataka og tryggingasala ef ágreiningur er um bótaskyldu

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.6.2010 kl. 02:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband