Leita í fréttum mbl.is

Svælum út illa fengið fé með gjaldmiðilsskiptum

Mig langar að varpa fram hugmynd sem ég hef heyrt oftar en einu sinni.  Hún er að skipta um gjaldmiðil, þ.e. úr krónum í nýjar krónur eða hvað við viljum kalla nýja gjaldmiðilinn.  Tilgangurinn væri fyrst og frest til að svæla út fé sem skotið var undan af íslenskum fjárglæframönnum, sem kölluðu sjálfa sig "business" menn. 

Ég hef heyrt því fleygt að hér á landi séu stórir hópar fjárfesta sem eiga skít nóg af peningum.  Ekki sé allt þetta fé eins vel fengið, þ.e. menn hafa látið peningana renna í gegn um alls konar aflandsfyrirtæki til að komast hjá því að gefa þessa peninga upp til skatts.  Með því að skipta um gjaldmiðil yrðu menn að gefa peningana upp eða tapa þeim ella.  Gætum að því, að verið er að tala um hundruð ef ekki þúsundir milljarða.  Skattur af þessu fé gæti dugað til að greiða upp allan hrunkostnað ríkisins, bæta almenningi tap sitt og endurbyggja velferðarkerfið.

Til að tryggja að bankarnir hafi ekki milligöngu um að hylma yfir með gömlu viðskiptafélögum sínum, þá yrðu skipti á öllum upphæðum umfram 50 milljónir að eiga sér stað í gegn um Seðlabankann og þeim fylgja ítarleg greinargerð um uppruna peninganna.  Gefinn yrði stuttur gluggi upp á 1 ár til að skipta frá gömlum gjaldmiðli til hins nýja.  Eftir það væri núverandi mynt ekki gjaldgeng í viðskiptum og eina leiðin til að skipta henni yfir í nýjan gjaldmiðil væri eftir ítarlega skoðun á uppruna peninganna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta gengur ekki upp, megnið að peningum sem skotið hefur verið undan er í erlendri mynt en ekki Íslenskum krónum.

Jón Gunnarsson (IP-tala skráð) 20.2.2010 kl. 17:03

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Hugmyndin er góð, en það þyrfti ekki gjaldmiðilsbreytingu til.

Viðsnúningur á reglum um sönnunarbyrði í skattkerfinu myndi duga.

Hr. Al Capone, þú ert handtekinn fyrir umfangsmikil skattsvik, þar sem þér tókst ekki að færa sönnur á að uppruni peninganna var í formi heiðarlegra viðskipta.

Núverandi skattkerfi, er ákkúrat öfugt.  Skattayfirvöld þurfa að færa sönnur á að uppruni meintra svartra peninga, sem afhjúpast í trylltum lífstíl.

Tek líka undir með Jóni, ekki víst að gjaldmiðillinn ISK sé að finna á innlánsreikningum í Tortóla.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 20.2.2010 kl. 17:25

3 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

leiðrétt;

Núverandi skattkerfi, er ákkúrat öfugt.  Skattayfirvöld þurfa að færa sönnur á að uppruni meintra svartra peninga, sé ólöglegur, sem afhjúpast í trylltum lífstíl viðkomandi.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 20.2.2010 kl. 17:27

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Vissulega langar mig til að trúa þér Marinó, en ég hallast fremur að efasemdum Jóns og Jennýjar.

Hafir þú rétt fyrir þér þá er nú sá kostnaður sem hlýst af innköllun krónunnar og nýrri seðlaprentun ósköp óverulegur í samanburði við ábatann.

Meira en litla bjartsýni þarf til að trúa því að þeir fjármunir sem skotist var með í skjól á klukkutíma og korteri fyrir hrun muni skila sér nema að óverulegu leyti. 

Árni Gunnarsson, 20.2.2010 kl. 18:00

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Tja, ef þýfi útrásarliðsins hefur verið skipt í erlendan gjaldeyri er það jafn tapað fé með og án gjaldmiðilsskiptingar.

Hef nú trú á því að eitthvað hljóti að vera af krónum í felum þar sem peningamönnum hefur eflaust ekki tekist að skipta þeim öllum eftir eða rétt fyrir hrun.

Athugum að eftirspurn eftir krónum var lítil mánuðina fyrir hrun og nánast engin eftir hrun. Eina leiðin hefur þá væntanlega verið að fá innlenda aðila til að kaupa þær og þeir höfðu líka litla trú á gjaldmiðlinum.

En hvernig fer með fé sem var fengið í peningaþvætti í þessu sambandi?

Theódór Norðkvist, 20.2.2010 kl. 19:40

6 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Það eru milljarðar á milljarða ofan í reikningum út um allt eða í bílförum í bankahólfum og jafnvel bílskúrum.  Menn fluttu háar upphæðir í ferðatöskum á milli landa.  Heldur fólk virkilega að Ísland sé eina landið í heiminum, þar sem hægt er að geyma íslenskar krónur.

Marinó G. Njálsson, 20.2.2010 kl. 19:51

7 identicon

Til að finna þessa peninga þarf að afnema tekjuskatt og leggja aðeins á umhverfis- og neysluskatta. Þannig yrði bundinn endir á möguleika skattsvikara til að kaupa sér eignir fyrir peninga sem búið er að svíkja undan skatti. Með slíkri kerfisbreytingu færðust skattgreiðslur yfir á þá sem eiga peninga og frá hinum sem minna hafa umleikis. Þá myndi heyra sögunni til að efnlítið fólk greiði meiri skatta en hinir sem ríkari eru. Augljóst er að statttekjur ríkisins myndu aukast verulega við slíka kerfisbreytingu sem kostar lítið sem ekkert í framkvæmd.

Arnþór Jónsson (IP-tala skráð) 20.2.2010 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 123
  • Sl. viku: 687
  • Frá upphafi: 1677709

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband