Leita í fréttum mbl.is

Erlendar skuldir og staða krónunnar

Það er áhugavert að fylgjast með þessari umræðu um erlendar skuldir ríkisins og þjóðarbúsins.  Í sumarbyrjun höfðu menn litlar sem engar áhyggjur af þessu og þurfti tvo gesti á fund fjárlaganefndar í Icesave umræðunni til að vekja menn til umhugsunar.  Þar á ég við sjálfan mig og Harald Líndal Haraldsson, hagfræðing.  En það er óhætt að segja, að við Haraldur lyftum lokinu af kistli Pandóru, því síðustu mánuði hafa menn verið ákaflega meðvitaðir um þessa stöðu.

Við skoðun á skuldastöðu ríkissjóðs annars vegar og þjóðarbúsins hins vegar, þá verður að horfa til nokkurra þátta.  Samanburðurinn við verga landsframleiðslu er ákaflega ruglandi.  Um þessar mundir er verg landsframleiðsla mæld í evrum ákaflega lág og erlendar skuldir mældar í krónum ákaflega há.  Þannig að sé samanburðurinn gerður í evrum, þá fáum við mjög neikvæða stöðu og sama gerist ef staðan er skoðuð í krónum, þ.e. miðað við gengið í dag.  Það er nefnilega eitt stærsta vandamálið í þessum samanburði.  Ef krónan styrkist, þá mun draga saman með vergu landsframleiðslunni og skuldunum, en það mun samt ekki breyta neitt getu okkar til að greiða skuldirnar.  Þetta hlutfall skiptir nefnilega ekki megin máli.  Það sem skiptir megin máli eru erlendar tekjur þjóðarinnar og viðskiptajöfnuður.  Til þess að geta greitt vextina af skuldunum og síðan skuldirnar sjálfar þarf að vera verulegt innstreymi gjaldeyris umfram útstreymi.  Í því felst vandamálið, ekki hvort skuldirnar séu 200%, 400% eða 600% af vergri landsframleiðslu.

Seðlabankinn setti í sumar fram draumórakennda spá um viðskiptaafgang næstu ára.  Þennan viðskiptaafgang er, að mati Seðlabankans, hægt að nota til að greiða upp skuldirnar.  En málið er, að þessi afgangur er ekki nægur.  Með 3.000 milljarða, að ég tali ekki um 6 - 8 þús milljarða tikkandi á vöxtum, þá duga 150 milljarðar ekki einu sinni til að greiða vextina.  Í því felst vandi þjóðarinnar, ekki hvort skuldir séu þetta eða hitt hlutfall af vergri landsframleiðslu.

Við skulum líka vara okkur á, að styrking krónunnar mun ekki breyta þessu endilega.  Styrkist krónan, þá mun jú vissulega draga saman, eins og áður segir, en afgangurinn af viðskiptum við útlönd mun lækka í krónum talið í sama hlutfalli og vaxtagreiðslurnar.  Lausnin er því ekki styrking krónunnar og lausnin er heldur ekki veiking krónunnar.  Lausnin liggur í því að vera með gjaldmiðil sem er viðurkenndur á alþjóðavísu, en gjaldmiðilsskiptin (ég reikna ekki með að krónan verði nokkurn tímann tekinn í sátt utan landsteina) verða að eiga sér stað með mun sterkari krónu.  Það er algert lykilatriði, vegna þess að við verðum að fá sem mest fyrir krónuforðann okkar.  En þar liggur annar vandi.

Staðreyndin er sú, að allt of margar krónur eru í umferð.  Ástæðan er einföld.  Þær verða sjálfkrafa til í kerfinu með verðbótum og hækkun gengistryggðra lána.  Þessi tvö lánaform eru því það sem er að drepa hagkerfið.  Styrkist gengið um 30%, þá mun peningamagn í hagkerfinu minnka um 15 - 20%!  Verði 10% verðhjöðnun, þá minnkar peningamagnið um 5-7%.  Ástæðan er sú að þetta kerfi reynir alltaf að halda sama fjölda af "raunkrónum" í umferð.  Þetta er náttúrulega fáránleg staða.  Fáránleikinn er ennþá meiri, þegar við skoðum víxlverkun þessara þátta.  Undanfarin 2 ár hefur krónan veikst um nálægt 100%.  Sú veiking bjó til fleiri þúsund milljarða króna í hagkerfinu í formi hækkunar krafna fjármálafyrirtækja á heimili og fyrirtæki.  Þessar krónur koma á ójafnvægi milli framboð og eftirspurnar á krónum, sem valda frekari lækkun á gengi og fleiri krónur verða til.  Sama gerist með verðbæturnar.  Þær urðu til vegna verðbólgu og valda svo frekari verðbólgu þar sem peningamagn jókst (raunmagnið hélst óbreytt).  Krónan mun ekki styrkjast og verðbólga fara niður fyrir 3% fyrr en Seðlabankinn hefur náð að minnka verulega peningamagnið sem er í umferð.  Og jafnvægi kemst ekki á hagkerfið fyrr en við losum okkur við verðtryggingu lána eða setjum þak á verðbætur, þannig að raunmagnið aukist ekki nema í takmörkuðu mæli í takt við verðbólgu.


mbl.is Skuldir ríkissjóðs örlítið lægri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Þetta virkar reyndar sem illskiljanleg þvæla á mig. En staðan er ekki endilega sú að við þurfum að styrkja krónuna heldur þurfa aðrir gjalmiðlar að veikjast til að koma jafnvægi aftur á.

Ég heyrði um daginn að Asíugjaldmiðlar þyrftu að hækka til að koma þessu jafnvægi á en afhverju má ekki jafnvægið koma vestanmeginn frá með lækkun vestrænna gjaldmiðla sem í raun eru of hátt skráðir?

Offari, 4.12.2009 kl. 14:34

2 identicon

Góður póstur og varpar ljósi á eitt stærsta vandamál peningamálastefnunnar og hagstjórnarinnar almennt. Verðtryggingin og vísitölubinding lána er nokkurs konar "self correcting mechanism" sem rústar krónuna, efnahagslífið og skuldastöðu heimila og fyrirtækja jafn óðum. Sykurskattur=>vísitöluhækkun=>hækkun lána - og eins og allir vita þá eru eignir=skuldir þannig að sykurskattur=>meiri eignir bankanna=>meiri krónur=>meiri verðbólga=>hærri vísitala=>meiri skuldir=>fleiri krónur=>meiri verðbólga - ad infinitum.

Verðtrygging og vísitölutenging lána er í rauninni bein skattlanging á almenningi sem rennur beint til bankakerfisins og ríkisins. Þessi skattlagning minnkar sjálfkrafa aga í peningamálastefnunni, stjórnun banka og ríkissjóðs - sem hjálpar til að viðhalda ruglinu.

Árni (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 16:21

3 Smámynd: Kristinn Pétursson

... og hvernig gat allt þetta gertst..??? Stór spurning..

Hugsanlegt er að  ástæðan sé virðingarleysi okkar við 40. og 41 gr. stjórnarskrár lýðveldisins -  við höfum ekki virt þessi ákvæði nægilega strangt - áratugum saman - 

En um þetta vantar umræðu

Kristinn Pétursson, 4.12.2009 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 686
  • Frá upphafi: 1677708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband