Leita í fréttum mbl.is

Skynsöm ákvörðun

Þetta eru góðar fréttir fyrir útgerðirnar og mun auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar um tugi milljarða.  Það sem kannski vekur furðu, er að Einar K. Guðfinnsson hefur neitað fram í það rauða undanfarna mánuði að fara þessa leið.  Hvers vegna þessi sinnaskipti núna, veit ég ekki, en mig grunar að væntanlegur landsfundur Flokksins hafi eitthvað með það að gera.  Mig grunar líka að á næstu dögum munum við sjá fleiri svona stórar ákvarðanir kynntar fyrir þjóðinni, enda virðast landsfundarsamþykktir Flokksins vera öllu æðra.

En varðandi aukningu veiðiheimilda, þá er allt sem segir að þetta sé skynsöm ákvörðun.  Sjómenn hafa sagt nægan þorsk vera í sjónum, aukning heimilda mun ekki kollvarpa uppbyggingarstarfinu og verð á afurðum er hátt.  Það sem þarf að tryggja, er að þessi 30 þúsund tonn fari til vinnslu innanlands og skapi þannig fleiri störf hér á landi.


mbl.is Þorskkvóti aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

besta leiðinn til að tryggja nýtungu innanlands án þess að setja íþyngjandi kvaðir er að lækka skatta á vinnslu.

Fannar frá Rifi, 16.1.2009 kl. 12:02

2 identicon

Góðan daginn

Um leið og ég fagna þessarri ákvörðun þá verð ég að koma því að að þessi ákvörðun styður þá skoðun margra að kvótakerfið hafi verið notað sem stýritæki um langan tíma, vísindi hafa ekki komið nærri þessu nema að afar litlu leyti.

Ekki er langt síðan að  fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins lýsti því yfir að nú ætti að veiða meira magn af þorski því að það hefði verið geymt til mögru áranna á meðan ruglið allt var í gangi.

Páll Kárason (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 12:24

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

kvótakerfið er bara kerfi leikreglna. svona svipað og leikreglur í fótbolta. og eins og í fótbolta er dómari sem fylgist með og stjórnar leiknum. dómarinn er hafró og hefur verið undanfarin ár hálffullur og dæmd víti á vitlausum vallarhelming. ef dómarinn er handónýtur, þá er ekki samasemmerki um að leikreglunar séu það líka.

Fannar frá Rifi, 16.1.2009 kl. 12:57

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það má örugglega bæta um betur og auka veiði meira en þetta miðað við vitnisburð þeirra sem draga fiskinn úr sjó.

Haraldur Baldursson, 16.1.2009 kl. 14:45

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það kom fram í fréttum um daginn að byrgðir af fiski séu að safnast upp vegna sölutregðu, sem stafar af minnkaðri kaupgetu almennings í þeim löndum, sem við höfum mest selt okkar fiskafurðir til. Verðmæti okkar fiskveiðiauðlynda verða ekki til við að fiskurinn er veiddur heldur við það að hann er seldur.

Af sömu ástæðum er komin þrýstingur á um lægra verð á fiskafurðum okkar. Auknar veiðar og þar með þörf fyrir aukna sölu munu ekki minnka þann þrýsting. Er eitthvað gefið að gjaldeyristekjur okkar muni aukast við þetta? Þegar haft er í huga að stór hluti kostnaðarins við að sækja þessi auka 30 þúsund tonn er erlendur kostnaður, þar á meðal olíukaup, þá eru enn minni líkur á að um einhvern nettó ávinning sé að ræða varðandi gjaldeyri.

Sigurður M Grétarsson, 16.1.2009 kl. 14:48

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er betra að veiða meiri þorsk en að safna skuldum í útlöndum.

Sigurður Þórðarson, 16.1.2009 kl. 15:12

7 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Sæll Marinó og takk fyrir síðast

Hvernig getur ákvörðun verið skynsöm,eins og fyrirsögnin segir

Ég hélt að hún gæti verið skynsamleg,eða hvað?

Hvort heldur sem er,er þetta vonum seinna en kom þó

Gunnar Þór Ólafsson, 16.1.2009 kl. 20:28

8 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Þetta er eingöngu gert til að geta bent á að þetta væri ekki hægt, þ.e. að taka geðþóttaákvörðun um aflaukningu, eftir inngöngu í ESB.

Helgi Jóhann Hauksson, 16.1.2009 kl. 21:17

9 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Þ.e. á þessu tímapunkti og með þessum aðdraganda þ.e. nær engum. Rétt stjórnsýslulega væri að spyrja Hafró fromlega álits og taka svona stóra ákvörðun til almennari og faglegri umfjöllunar. - Geðþóttaákvarðanir eru þó það sem íslensk stjórnsýsla kann best.

Helgi Jóhann Hauksson, 16.1.2009 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 686
  • Frá upphafi: 1677708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband