Leita í fréttum mbl.is

Spáin breytist um 17% á tveimur mánuđum

Ţađ hefur heldur betur orđiđ viđsnúningur í spám greiningardeildar Glitnis.  Í ţjóđhagsspá Greiningar Glitnis sem kom út í lok maí kemur fram ađ gert er ráđ fyrir ađ međalgengisvísitala ársins verđi 142, en lokagildi 135.  Ég bloggađi um ţessa spá (sjá Glitnir: Svartsýni fyrir ţetta ár, en bjartsýni fyrir ţađ nćsta) og taldi m.a. ađ til ţess ađ ţessi spá Glitnis gćti gengiđ eftir, ţá ţyrfti gengiđ ađ veikjast talsvert frá ţví sem ţá var:

Mér virđist ţví Glitnir spá ţví ađ gengisvísitala á bilinu 143 til 147 verđi ţađ sem viđ stöndum frammi fyrir alveg til nóvemberloka og ţađ verđi ekki fyrr en í desember sem gengiđ takist ađ styrkjast svo heitiđ getur.  Annar möguleiki er ađ ástandiđ eigi eftir ađ versna aftur áđur en ţađ tekur ađ batna.

Nú er komiđ annađ hljóđi í strokkinn hjá Glitni og fólk hjá Glitni orđiđ svartsýnna. Spáđ er gengisvísitölu upp á 158 í árslok, sem er heilum 17% lćgri vísitala en spáđ var í lok maí!  Ţetta er umtalsverđ breyting á ekki lengri tíma, sem sýnir ađ menn hafa raunar ekki hugmynd um hvernig hlutirnir munu ţróast.  Og á međan ríkisstjórn og Seđlabankinn gera ekkert til ađ styđja viđ gengi krónunnar, ţá er alveg öruggt ađ engum öđrum dettur ţađ í hug.  Ég vćri hins vegar til í ađ taka hátt erlent lán á nćstu dögum, ef einhver er til í ađ veita mér ţađ.


mbl.is Spá lítilli styrkingu krónu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţađ er rétt, núna er líklegast tíminn til ađ taka erlent lán.

Ţađ verđur ađ taka yfirlýsingum greiningardeildanna međ miklum fyrirvara. T.d. spáđi Glitnir ţví í upphafi árs ađ úrvalsvísitalan myndi hćkka um 40% á árinu. Síđan ţá hefur gengiđ falliđ um 25%

Karma (IP-tala skráđ) 25.7.2008 kl. 15:57

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 83
  • Sl. sólarhring: 144
  • Sl. viku: 646
  • Frá upphafi: 1677663

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband