Leita í fréttum mbl.is

Hvað er að dómskerfinu?

Í fréttum annarrar sjónvarpsstöðvarinnar í kvöld var frétt þess efnis, að maður hafi fengið 30 daga skilorðsbundinn dóm til tveggja ára fyrir að "buffa" sambýliskonu sína, þannig að stór sá á henni.  Á dv.is er frétt þess efnis að annar maður hafi fengið 5 mánaða dóm fyrir að kýla annan mann þannig að tönn brotnaði.  Er ekki allt í lagi?  Ná hegningarlög ekki yfir líkamsárásir í heimahúsum?  Siðgæðisvitund minni er misboðið með svona hróplegu óréttlæti.

Í fyrra tilfellinu virðist um yfirgengilegt ofbeldi gagnavart konunni, þar sem hún er laminn aftur og aftur.  Í síðara tilfellinu er eitt eða tvö högg í afbrýðiskasti.  Ef eitt eða tvö högg gefa 5 mánuði, þá hefði hinn átt að fá 5 ár hið minnsta.  Af hverju er svona mikið ósamræmi milli ofsafengis heimilisofbeldis og tveggja kjaftshögga á skemmtistað?  Er það vegna þess að fleiri horfðu á hið síðara?  (Ég tek það fram að sá sem veitti kjaftshöggin átti skilið að fá dóm, en 5 mánuði skilorðsbundið til þriggja ára er líklegast fullmikið í lagt.)

Ef dómaframkvæmd hegningarlaga gagnvart líkamsárásum inni á heimilum gagnvart öðru heimilisfólki (það sem falið er undir hugtakinu heimilisofbeldi) er jafn arfavitlaus og raun ber vitni, þá er einfaldlega nauðsynlegt að setja í lög að refsingar vegna slíkra líkamsárása skulu vera í samræmi við refsingar þegar óskildir/ótengdir aðilar eiga í hlut.  Maður sem "buffar" konuna sína, líkt og konan lýsti, á að þurfa að sitja nokkur ár í fangelsi, ef sá sem kýlir annan í augnabliksæði fær 5 mánaða fangelsi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hvernig dæmt er fyrir ofbeldisverk á Íslandi hefur aldrei skilist.  Flyttu inn smá efni sem menn koma og kaupa fúsum og frjálsum vilja: 9 ár.

Föndraðu við það í korter að ganga svo í skrokk á einhverjum að viðkomandi stendur ekki upp aftur: 30 daga skilorðsbundið, 5 mánaða skilorðsbundið, hálft ár... aldrei meira. 

Þetta ætti að vera öfugt.  Það er jú að traðka á frelsi manna að berja þá.  Það að selja dóp er ekki að traðka á neinu frelsi.

Undarlegt. 

Ásgrímur Hartmannsson, 7.3.2008 kl. 00:37

2 identicon

Þetta er ekkert nýtt.

Hér enn og aftur eru ofbeldismenn sem beita líkamlegu ofbeldi teknir þvílíkum vettlingatökum, af bæði lögreglunni og ekki síst dómsvaldinu. Eins og Ásgrímur sagði hér að framan þá eru þetta 1 til 5 mánaða skilorðsbundnir dómar í mesta lagi.

Fullt af þessum málum ná einu sinni aldrei svo langt að fara fyrir dómara.  Þessu er svo margoft klúðrað í meðförum lögreglu. Mál fyrnast, rannsóknin ónákvæm, vitni ekki kölluð fyrir og svo framvegis og svo framvegis. ÞETTA ERU VETTLINGATÖK !   

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 09:54

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

getur ekki verið að þið vitið ekki eitthvað sem dómararnir vita? Það var viðtal við þessa bandarísku konu sem sagði sína hlið á málinu, hans hlið kom ekki fram. Og er eitthvert vit í því að dæma menn til langrar fangelsisvistar, menn sem kannski hafa áður óflekkað mannorð? Frekar að dæma menn í einhverskonar meðferð. "Anger management". Ég veit auðvitað ekkert um þetta mál, en ég dæmi það ekki eftir umræðum úti í þjóðfélaginu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.3.2008 kl. 13:07

4 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Gunnar, það er alveg örugglega rétt að við vitum ekki allt.  Ég er að bera saman þessa tvo dóma og er ekki að segja að annar sé réttur og hinn vitlaus.  Ég er að segja að miðað við verknaðarlýsingar, þá virðast sem hafi orðið endaskipti á refsingunni.

Nú varðandi þjóðerni konunnar, þá er það algjört aukaatriði og raunar rangt að blanda því eitthvað inn í umræðuna.

Marinó G. Njálsson, 7.3.2008 kl. 13:30

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er mjög eðlilegt að blanda þjóðerni konunnar í umræðuna, því hún gerir það sjálf. Hún talaði um að maðurinn hefði fengið lágmark 1 árs fangelsi í heimalandi sínu en skilaboð dómskerfisins á Íslandi til afbrota af þessu tagi væru allt önnur.

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.3.2008 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband