Leita í fréttum mbl.is

Skipulag Vatnsendahlíðar og hækkun lóðarverðs

Í Fréttablaðinu í gær var auglýsing frá Kópavogsbæ um úthlutun lóða í Vatnsendahlíð við Elliðavatn.  Sem húsbyggjanda í Þingum, þá vöktu nokkur atriði athygli mína.

  1. Nýr skóli á að rísa og er hann staðsettur það langt frá aðalbyggingasvæðinu, að það verður styttra fyrir skólabörn af annars vegar vestasta hluta svæðisins og hins vegar nyrsta hluta svæðisins að fara annað hvort í Hörðuvallaskóla eða Vatnsendaskóla.  Staðsetning skólans bendir til þess að stefnt er að því að létta vatnsvernd af svæðinu milli þess sem nú er verið að auglýsa til úthlutunar og Heiðmerkur og þar eigi eftir að koma mjög stórt hverfi.
  2. Aðeins er gert ráð einni umferðaræð út úr hverfinu, þ.e. Þingmannaleið.  Er ég ansi hræddur um að hún muni ekki duga, þegar viðbótin sem ég nefni að ofan verður komin.  Það væri strax til bóta að gera ráð fyrir annarri tengingu við Vatnsendaveg um svæðið sunnanvert eða um Elliðahvammsveg.
  3. Verð á lóðum hefur allt að þrefaldast frá því að úthlutað var síðast í Þingum.  Árið 2005 kostaði einbýlishúsalóð um kr. 7,2 milljónir, en nú er verð þeirra á bilinu kr. 13 - 20 milljónir.  Og þetta er bara grunngjald.  Ef reglur eru eitthvað svipaðar nú og áður, þá geta húsbyggjendur átt von á að þurfa að punga út einhverjum milljónum til viðbótar, þegar stærð húsanna er komin á hreint.
  4. Hylja á Vatnsendahlíðina algjörlega með byggð, þó einhver græn rönd eigi að vera þarna, þá er það reynsla manna í Kópavogi, að það er tímabundið ástand og það er bara tímaspursmál hvenær skipulögð verður byggð á þeim.
Ég hef mestar áhyggjur af umferðinni og sé fram á að það verði erfitt að komast út úr hverfinu, þegar fram líða stundir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þá má bæta við ósköp hógværri spurningu við þær sem fram eru komnar hér að ofan: hvaðan kemur allt þetta fólk sem flytur inn í öll þessi hús, stór sem smá?

Er markaðurinn ekki löngu orðinn mettur? Hvað skyldi Steinn Steinarr skáld segja um öll þessi ósköp: byggingameistrar hver um annan þveran taka handfylli sína af leir og guð almáttugur segir: Gunnar góður - ekki meir - ekki meir! 

Eða þannig!!

Mér sýnist á öllu að þetta byggingaæði hafi byrjað í bráðræði og á sjálfsagt eftir að enda í ráðaleysu!

Fyrir rúmum 40  árum plantaði Mosi allmörgum birkitrjáplöntum í dálítið erfðafestulandforeldra sinna spölkorn vestan við Vatnsendabæinn. Þegar Mosi hugðist skoða þessa trjárækt hérna um árið voru skurðgröfur og jarðýtur á vegum bæjarstjórans ofvirka löngu búnar að fjarlægja þessa viðleitni ungs drengs að breyta dálitlu mólendi í sælureit. Trjárækt virðist ekki vera metið upp á marga fiska sunnan Fossvogslækjar um þessar mundir, ekkert líf virðist fá lengur að vera í friði á þeim slóðum. Nú skal byggja og byggja mjög mikið!

En hvaðan kemur allt fólkið? Og hvaðan kemur byggingamönnum þessi mikli auður?

Mosi - alias 

Guðjón Sigþór Jensson, 17.9.2007 kl. 22:32

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Sæll Guðjón

Það er gaman að heyra frá þér eftir öll þessi ár.  Já, það er synd að náttúran megi hvergi njóta sín.  Ég hefði kosið að haldið væri eins og kostur er í upprunalega gróður svæðisins, en það er bara eins og mönnum detti það ekki í hug.  Það hefði líka verið gaman að þarna væri boðið upp á verulega stórar lóðir, þannig að hægt væri að tala um sveit í bæ.

Kv.

Marinó 

Marinó G. Njálsson, 17.9.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 687
  • Frá upphafi: 1677709

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband