Leita í fréttum mbl.is

Orðræða og orrahríð sem netið geymir

Þegar ég var yngri og sérstaklega á barnsaldri, þá var oft talað falllega um gömlu dagana og oft notað setningarbrotið "þegar amma var ung..".  Ja, þegar ömmur mínar og afar voru ung, þá var ekkert internet, þannig að þau þurftu ekki að óttast að það sem þau gerðu eða sögðu yrði ódauðlegt, nema svo (ó)heppilega vildi til að eitthvert skáld álpaðist til að setja söguna á blað.  Það vill nú svo til að Þórbergur Þórðarson leigði um tíma herbergi af langafa mínum og -ömmu, en ég er ekki viss um að þau hafi ratað inn í neina af bókum hans.  Verð samt að viðurkenna, að ég er ekki viss.

Við getum vissulega lesið skemmtilegar sögur um íslenska stjórnmálamenn, og þeir virtust hafa verið orðheppnir með ólíkindum.  Hafa líklega aldrei mismælt sig eða sagt neitt rangt, hef ég eftir mér fróðari mönnum um efni ævisagna þeirra.  Les ekki ævisögur og hef því ekki sannreynt það.  Á þessum árum gat fólk sagt allt mögulegt og þó úr því yrði einhver munnmælasaga, þá var nokkuð víst að sú saga myndi breytast mikið og frekar verða betri en fyrirmyndin en verri.

Netið gleymir engu

En nú er öldin önnur.  Nánast allt sem menn láta frá sér fer viðstöðulaust út á öldur ljósvakans.  Ekki bara það, heldur festist það í stærsta kóngulóavefi allra tíma, veraldarvefnum.  Þetta er vefur sem ekki slitnar og hann límir allt við sig sem einhverju sinni kemst í snertingu við hann.  Þannig getum við ekki bara lesið hvað Sigmundur Davíð í raun og veru sagði, heldur líka hvað Illugi Jökulsson (svo dæmi sé tekið) heyrði hann segja.  Við getum borið saman viðbrögð Dags Eggertssonar við gagnrýni á rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna og viðbrögðum hans við tillögu um að kjósa um lóð undir mosku í Reykjavík.  Við getum lesið fréttir af "ljótum" klæðnaði sjónvarpsfréttamanna, "ólögulegum" vexti þulunnar, "framhjáhaldi" veðurfréttamannsins og guð má vita hvað.

Sem betur fer þá endist margt af þessu ekki í minni okkar.  Það kemur nefnilega eitthvað nýtt og ennþá meira krassandi sem tekur við.  En kóngulóavefurinn geymir allt.  Ef þið trúið mér ekki, þá vil ég benda á vefsvæðið  Internet Archive: Webback Machine, en þar má finna afrit af gömlum vefsíðum sem ekki eru lengur í loftinu.  Síðan má nota venjulegar leitarvélar og leita uppi allt og ekkert.

Orðstír deyr engum..

Ég velti því oft fyrir mér hvaða umræða stenst tímans tönn.  Hvaða orðstír það verður sem ekki deyr?  Menn gleyma nefnilega oft að erindin "Deyr fé, deyja frændur.." eru tvö.  Annað fjallar um góðan orðstír, en hitt slæman.  Það sem ég velti ekki síður fyrir mér, mun fólk horfa með stolti og ánægju til orða sinna og afhafna eða eftirsjá og leiða.  Líklegast veltur það á athöfninni.  Loks velti ég fyrir mér hvernig komandi kynslóðir munu líta á orðin.  Munu börnin og barnabörnin fyllast stolti yfir framgöngu mömmu/ömmu eða pabba/afa á árum áður.  Hver verður dómur sögunnar?

Ég ætlast svo sem ekki til að fólk breyti skoðunum sínum með þetta í huga, en mikið væri gott að það hugsaði aðeins hvers konar fyrirmyndir það er fyrir kynslóðina sem er að vaxa úr grasi.

Uppþot vegna moskuummæla

Mér fannst orð oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík um að setja lóðarúthlutun til Félags múslima í kosningu borgarbúa vera heimskulega, en ekkert meira.  Hún notaði kjánaleg rök, en lýsti því jafnframt yfir að hún setti sig ekki upp á móti að reist yrði bænarhús félagsins(!) og ekki vildi hún skerða á neinn hátt frelsi múslima til að iðka trú sína.  (Viðtalið má lesa hér.)  Því miður voru flestir hættir að lesa/hlusta, þegar kom að þessum hluta viðtalsins og því misstu þeir af því.

Viðbrögð hinna sem fylltust réttlátri reiði voru eins og Guðs í Gamla testamentinu.  Ofsafengin.  Sódóma og Gómorra skyldi eytt með eldi og brennisteini.  Skítt með þó flestir væru saklausir.  Allir skyldu líða fyrir orð einnar manneskju. Og það eru þessi viðbrögð sem ég held að þegar framlíða stundir fólk myndi ekki vilja að komandi kynslóðir geti lesið.  Málsmetandi einstaklingar, sem hafa sumir verið í kjöri til mikilsverðra embætta, misstu sig algjörlega.  Fjöðrin varð fljótlega að heilu hænsnabúi. Vitræn hugsun vék til hliðar fyrir einhverri ófreskju sem á frekar skylt við berserki eða hamhleypur en það dagfarsprúða fólk, sem þessir einstaklingar líklegast eru.

Mér dettur ekki í hug að gagnarýna fólk fyrir afstöðu sína, það að vera á móti hömlum á trúfrelsi (eins og það túlkaði orð oddvitans), en ég skil ekki hvernig orðræðan fór frá því að vera sterk mótmæli við því sem fólk heyrði yfir í það að tala um rasista, fasista, nasista, útlendingahatur, miðjuöfgaflokk og algilt hatur á framsóknarfólki.  Sérstaklega, þegar Sveinbjörg segir að allir eigi að geta iðkað trú sína og hún er hlynnt byggingu bænahúss.  Verst fannst mér að sjá umræðuna toga út úr hinum dýpstu skúmaskotum samfélagsins virkilega veika einstaklinga, sem eru ekkert annað en rasistar, fasistar, nasistar og bera með sér útlendingahatur.  Þá einstaklinga sem eru í raun og veru þeir lægstu af öllu lágu í þessu þjóðfélagi.  En þeir þorðu að koma út vegna þess að þeir töldu sig eiga skjól hjá þeim sem urðu fyrir eldingaveðrinu.  Og að ógleymdum þeim einstaklingum sem af óvitaskap sögðu hluti sem þeir iðrast að hafa sagt.

Var þetta raunverulegt eða sviðsett?

Líklega hefur hluti umræðunnar verið leikrit, þar sem verið var að prófa hve langt væri hægt að ganga í kosningabaráttunni.  Hef ég t.d. enga trú á því að fólk hafi meint allt það sem það ritaði og sagði.  Ég er fyrir langa löngu búinn að komast að því að maður tjáir sig á annan hátt í rituðu máli og ræðum, en maður gerir í mannlegum samskiptum.  Hér var kominn heldur smekklaus hlið af Morfís-ræðukeppninni.  Þó gekk svo langt að fréttist af því að einn góður fjölmiðlamaður hafi misst sig gagnvart konu sem hafði skoðanir honum ekki þóknanlegar, en hann baðst afsökunar og það sem meira var að skrif hans urðu umburðarlyndari á eftir.

Af umburðarlyndi umburðarlyndra

Það sem mér finnst skjóta skakkast við í þeirri orrahríð sem gengið hefur yfir undanfarna 10 daga, er hve hugtakið umburðarlyndi virðist hafa takmarkað svið.  Umburðarlyndið virðist bara ná til þess sem viðkomandi er þóknanlegt.  Hef ég nokkrum sinnum vísað til greinar Bergs Ebba Benediktssonar, leikara, Umburðarlyndi, þar sem hann segir á skoplegan hátt:

Umburðarlyndi er einn af mínum helstu kostum. Ég er umburðarlyndur maður og ég geri umburðarlyndi hátt undir höfði í skoðunum mínum til lífsins.

Umburðarlyndi er birtingarmynd samkenndar og samúðar. Það erum við umburðarlynda fólkið sem höldum þjóðfélaginu saman. Ef ekki væri til umburðarlynt fólk eins og ég þá væri hér hver höndin upp á móti annarri. Ég er stoltur af sjálfum mér því ég er ekki þrjóskur og þröngsýnn eins og flestir. Ég er umburðarlyndur.

Háðið náttúrulega skín í gegn eins og framhald greinarinnar ber með sér.  En skilaboðin eru sterk.  Allt of margir sem þykjast vera umburðarlyndir eru ótrúlega umburðarlausir.  Ekki bara það, þeir eru alveg ótrúlega falskir og veigra sé ekki við að fara með rangt mál, snúa út úr, bera upp á fólk rangar sakir, misbjóða öllum nema skoðanabræðrum sínum, og til hvers?  Að slá ómerkilegar pólitískar keilur og hugsanlega að fá fullnægingu sinna hvata.  Ég velti því oft fyrir mér hversu leiðinlegu lífi fólk lifir sem er í þessari stöðu.  Ef þetta er mesta skemmtun þess, hvernig eru þá hinir tímar sólarhringsins.  Auðvitað lenda allir einhvern tímann í því að tala sér þvert um hug, en þessi múgsefjun sem við urðum vitni að í síðustu viku og reynt er að halda við á a.m.k. einum miðli, er ekki bara niðurdrepandi.  Hún skemmir íslenskt samfélag og gerir það fráhrindandi.  Maður veit nefnilega aldrei hver er næstur og fyrir hvaða uppblásnu sakir.

Því miður ekki einstakur atburður

Svona framkoma er ekkert afmarkað tilfelli.  Hún er því miður allt of algeng.  Kosningar virðast vera kjörið tækifæri, en þegar grant er skoðað, þá eru dagarnir færri, þar sem ekkert svona er í gangi en hinir, þar ofsi og níðskrif ráða umræðunni.  Kannski er fólk ekki að höndla að geta tjáð skoðanir sínar fyrir framan tölvuna án þess að þurfa að horfa framan í þá manneskju sem verið er að fjalla um.  Bland.is er vefur sem ég fer aldrei inn á, en maður les reglulega sögur af því sem þar fer fram.  Einelti í skólakerfinu er stundum svo svæsið að manni bregður. En hvers vegna ættu börn og ungmenni að skilja alvarleika eineltis, þegar foreldrar þeirra stunda það á netinu dagsdaglega?  Fyrirmyndin að hegðun barnanna er foreldrarnir, en hver er fyrirmynd foreldranna.  Gleymum því ekki að orðræða okkar endurspeglar okkar innri mann.

Er ekki kominn tími til að breyta orðræðunni?  Hefja hana upp á hærra plan.  Sýna hverju öðru þá virðingu sem við viljum að okkur sé sýnd.  Vera börnunum okkar góð fyrirmynd á sem flestum sviðum.  Enginn er gallalaus, en berum persónuleikagalla okkar í hljóði.  Sýnum aðgát í nærveru sálar.

Hvet svo í lokin alla til að lesa hið magnaða ljóð Einars Benediktssonar, Einræður Starkaðar, en hann fjallar um flest af því ég er hér að fjalla um, þó sjónarhornið sé oft annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú Marínó þetta er rasismi og ekkert annað. Það hljómar ekki fallega, en það breytir engu. Rasismi er það.

Sandkassinn (IP-tala skráð) 4.6.2014 kl. 15:00

2 identicon

Sæll Marinó - sem og aðrir gestir þínir !

Gunnar Waage !

Ekki - leika þig fákænni: en þú raunverulega ert ágæti drengur.

Kynþættir og litarháttur fólks - hefir ekkert með trúarbrögð að gera / þó að Múhameðskir og ýmsir bjálfar í vinahópi þeirra láti í veðri vaka - í fullkomnu blekkingarskyni Gunnar minn.

Síðan hélt ég - að Rasismi heyrði undir fræðigrein Mannfræðinga - aukinheldur.

Og - þeim bæri þar með nafnbótin.

Með beztu kveðjum úr nýafstöðnum Þrumugný - af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.6.2014 kl. 16:02

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Gunnar, ég gef nú ekki mikið fyrir svona einföld "rök".  Að vilja frekar eina tegund trúarlegrar byggingar en aðra, er hvorki rasismi né skerðing á trúfrelsi (þó þú nefnir það ekki).  Hins vegar var margt í málflutningi oddvitans samhengislaust, mótsagnakennt og ekki í takt við hugmyndir flestra um umburðarlyndi gagnvart samlöndum okkar.

Menn hefðu ekki tekið þá ákvörðun að skilja á milli uppruna/kynþáttar og trúar í öllum mannréttindayfirlýsingum (a.m.k. þeim sem ég þekki til), ef mismunun gagnvart hvorutveggja teldist sams konar mismunun.  Nei, þarna er skilið á milli vegna þess að fólk af sama kynþætti getur haft mörg mismunandi trúarbrögð og öfugt.  Kynþáttahyggja (rasismi) er mismunun á grunni kynþáttar án tillits til hvaða trúarbrögð fólk aðhyllist.  Skerðing á trúfrelsi er skerðing á grunni trúar án tillits til kynþáttar.

Hvorutveggja telst hins vegar til haturs og mismununar og hvorugt á að vera liðið.

Oddviti Framsóknar vildi ekki hefta trúfrelsi, hún setti sig ekki upp á móti einum einasta kynþætti, hún hafði skoðun á því hvort byggingin sem reist yrði fengi hlutverk mosku eða bænahúss.  Hún vísaði m.a. til þess að í Lúxemborg, álika fjölmennu ríki og Ísland, væri engin moska.  Nú veit ég ekkert af hverju það er, en veit ekki til þess að það hafi valdið öfgakenndum viðbrögðum.  Kjósendur í Sviss gengu lengra og lögðu bann við byggingu moska.  Enginn, svo ég viti til, hefur sagt í Ísland í samneyti við rasista með sambandi sínu við Sviss.  Menn hafa ekki talað um öfgastefnu Svisslendinga.  ESB íhugaði að endurskoða afstöðu sína til Sviss, en rann á rassinn með það.

Það gleymist svo alltaf, að það er ein moska í Reykjavík, þannig að það er um seinan að loka fyrir þann möguleika.  Þess frekar voru ummæli oddvitans kjánaleg.

Marinó G. Njálsson, 4.6.2014 kl. 16:28

4 Smámynd: Elle_

Gunnar, kannski er visst hatur og í það minnsta visst óþol í landinu gegn ýmsum hópum.  Hvort þú meintir kynþáttahatur eða ekki, en orðið sem þú notaðir þýðir akkúrat það, kynþáttahatur.  Hvort menn fái fría lóð í bænum eða ekki, kemur það ekkert kynþáttahatri við.  Í það minnsta ekki frá allra sjónarhóli.  Og ekki frá mínum sjónarhóli.  Það er alhæfing, Gunnar. 

Og líka pistillinn: Hinir óttaslegnu- -.  (Og hinn um fasistana).  Hver er skíthræddur við útlending af því hann er útlendingur?  Það er fjarstæða og útlendingahræðslurökin halda ekki frekar en útlendingahatursrökin.  Við búum nú ekki enn í holum í jörðinni og förum og búum víða um heiminn.  Þar er allt yfirgnæfandi fullt af 'útlendingum'.  Þar bjó ég ein í húsum með eintómum 'útlendingum'.  Það væri hægt að vera skíthræddur við Íslending líka, ekki vantar það, en fjandinn ekki bara af því hann er íslenskur.

Elle_, 4.6.2014 kl. 17:01

5 identicon

Ég sé að orðhengilshátturinn er hér allsráðandi. Ég er nú að gera þetta í símanum og nenni ekki einhverri langloku. Þetta er heldur ekki flókið.

það er vinsælt orðatiltæki: hættulegasti rasistinn er sá sem býr innra með okkur öllum án þess að við vitum af því. Marínó, konan færði alls kyns rök fyrir þessu erindi sínu. Þau rök lúta nú ekki öll að skipulagsmálum og held ég að það liggi nú de facto skýrt fyrir. Þetta er rasismi, rekistefnan gengur út á mismunun sem kveðið erá um í Mannréttindasáttmála Evrópu. Brot á stjórnarskrá sem og á gildandi stjórnsýslulögum. Svo maður tali nú ekki um kærur sem tengjast umræðunni.

Sandkassinn (IP-tala skráð) 4.6.2014 kl. 17:58

6 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Gunnar Waage !

Hverra sérstakra ''mannréttinda'' - ættu hérlend trúsystkini Boko Haram lýðsins suður í Nígeríu: og annarra viðlíkra að njóta / ágæti drengur ?

Ertu ekki aðeins - að fara yfir strikið Gunnar minn ?

Hvar - voru MANNRÉTTINNDI: þeirra Grindvíkinga / Vestmannaeyinga og Djúpavogsbúa - sem Tyrkir og vinir þeirra frá Alsír og víðar að: drápu hér og rændu: Sumarið 1627 ?

Reyndu nú að jarðtengjast Gunnar minn - og átta þig á að við vitum ALDREI hvar við höfum Múhameðska liðið / undirförult fordæðulegt: og umfram allt VILLIMANNLEGT !

Með - ekki síðri kveðjum / en öðrum áður //

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.6.2014 kl. 18:17

7 Smámynd: Elle_

Gátum við vitað að þú meintir mismunun en ekki kynþáttahatur, Gunnar?  Þú notaðir orðið kynþáttahatur (þýtt) og það orð er búið að vera í gangi í heila viku núna með miklum ofstopa, nú fyrir utan fasistar, útlendingahatur og útlendingahræðsla, þjóðrembingur og öfgamenn.  Við lesum ekki hvað fólk meinar, við lesum hvað það skrifar.

Elle_, 4.6.2014 kl. 18:20

8 identicon

Köllum þetta bara rasisma, einfalt og gott.bkv

Sandkassinn (IP-tala skráð) 4.6.2014 kl. 19:25

9 identicon

Komið þið sæl - sem fyrr !

Gunnar Waage !

Er þetta stutta - sem snaggaralega svar þitt (kl.19.25)við fyrirspurn Elle fornvinkonu minnar til marks um: hugmyndafræðilegar ógöngur þínar ?

Nema - trommusettið hafi kallað á þig: frá lykla borðinu Gunnar minn ?

Hinar sömu kveðjur - sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.6.2014 kl. 20:24

10 identicon

Nei ég hef ekki sett fram neina hugmyndafræði hér Óskar Helgi, ég hef heldur ekki sett fram nein rök eða skilgreiningar þar sem að málið liggur nokkuð ljóst fyrir. Þú getur til dæmis breitt lögum og látið á það reyna þótt þau samræmist ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu til dæmis, sem (Marínó) nota bene er ekki Evrópusambandsins heldur Evrópuráðsins sem er ekki hluti af Evrópusambandinu. ESB getur því brotið ákvæði sáttmálans. Vandamálið í þessu er að sáttmálinn hefur lagagildi hér á landi og lagasetning sem færi gegn ákvæðum sáttmálans myndi verða felld í Hæstarétti. Þetta er því ekki svo einfalt að bara sé hægt að setja lög eftir geðþótta yfirvalda.

Málið' fjallar ekki einu sinni um hugmyndina um lagabreytingu því jafnvel þótt slík vitfirra færi hér fram, þá öðlast lögin ekki gildi fyrr en þau eru samþykkt. Samþykktir gerðar fyrir þann tíma falla náttúrulega ekki undir nýju lögin.

Framsóknarflokkurinn lagði upp með þjóðernisstefnu fyrir síðustu kosningar og hefur haft hana ítrekað í hávegum á kjörtímabilinu. Þjóðernishyggjan út af fyrir sig er ekki slæm eins og ég hef einnig sagt á mínu bloggi (elle), hún er aftur á móti varasöm því afar stutt er yfir í öfgarnar. Nú er komið á daginn að þessi áhersla Framsóknarflokksins á þjóðleg gildi, hefur reynst of stór biti fyrir vissan hóp Framsóknarmanna, þeir hafa tapað sér. Einnig tókst Sveinbjörgu að verða sér út um ruslfylgi fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Á móti mun flokkurinn tapa fylgi á landsvísu, í stað ruslfylgisins mun hann missa þeim mun stærri hluta af sínu hefðbundna fylgi.

Það er því Framsóknarflokkurinn sem tapar á málinu og engin annar. Það er ágætt að línur skýrist og flokkurinn komi fram eins og hann er klæddur. Það mun verða hans banabiti og engin heilvita maður syrgir stjórnmálaflokk, alla vega ekki sá sem hér situr. Nei ég þarf engan fyrirlestur um muninn á kynþáttahyggju og þjóðernisstefnu eða mismunun.

Verst þykir mér að þetta mál skaði mögulega baráttuna gegn aðild að Evrópusambandinu, sú vinna færi þá fyrir ómerkilegt framapot oddvitans í Reykjavík. En þessi stefna að ætla að halda þjóðaratkvæði um hvort hér skuli vera mannréttindi eða hvort farið sé að stjórnsýslulögum, þetta er hættulegur málflutningur og meiðandi.

Fyrir utan það að vera hrein tímasóun því það gengur ekki eftir.

Sandkassinn (IP-tala skráð) 4.6.2014 kl. 22:08

11 Smámynd: Elle_

Já, það mætti undirstrika líka að Mannréttindadómstóll Evrópu heyrir undir Evrópuráðið og ekki báknið 'Evrópu'sambandið.  Það er allt annað mál.

Elle_, 5.6.2014 kl. 11:19

12 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Alveg einstök rök hjá þér, Gunnar:

ég hef heldur ekki sett fram nein rök eða skilgreiningar þar sem að málið liggur nokkuð ljóst fyrir

Það er sagt að rök hins rökþrota manns feli einmitt í sér þessi "þar sem að málið liggur nokkuð ljóst fyrir".  Man eftir þessum orðum í viðtali við þáverandi menntamálaráðherra um málefni fræðslustjórans í norðurlandi eystra.  Hann var síðar dæmdur fyrir valdníðslu (þó það hefði ekki verið kallað því nafni).

Þarf að prenta þetta út og ramma inn, mér til varnaðar:

ég hef heldur ekki sett fram nein rök eða skilgreiningar þar sem að málið liggur nokkuð ljóst fyrir

Marinó G. Njálsson, 5.6.2014 kl. 19:24

13 Smámynd: Elle_

Gunnar, úr því við erum komin í bloggsíðu Marinós í orðræðu, og pistlarnir þínir eru lokaðir commentum, langar mig að bæta við að ég skildi ekki hvað var gagnrýnivert við að fólk skrifaði um fánann.  Halldór Jónsson skrifaði um fánann og benti á að Bandaríkjamenn geri þetta.  Persónulega skil ég það sem eðlilega föðurlandsást að fólk meti tákn fullveldisins og lýðveldisins.  Það táknar ekki hatur á einum eða neinum, er alls ekki endilega þjóðernissinnað og ekki þjóðrembingur.

Elle_, 5.6.2014 kl. 21:40

14 Smámynd: Elle_

Með geri þetta meinti ég að Bandaríkjamenn noti fánann.

Elle_, 5.6.2014 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband