Leita í fréttum mbl.is

Forgangsröðunin á hreinu hjá þessum

Vandinn við niðurskurð er forgangsröðunin.  Flestir vilja komast hjá því að skera niður og því velja að skera niður þjónustu sem þeir telja að veki mikla athygli, ef hún verði slegin af.  Er þetta heldur ljótur leikur. 

Ég er viss um að Sjúkratryggingar geta fundið betri leið en þessa.  Er ekki nóg að foreldrarnir séu í þeirri stöðu að vera bundnir yfir langveikum og fötluðum börnum sínum nær allan sólarhringinn, þó ekki sé verið að svipta þá þeirri aðstoð sem þeir þó fá.  Er ég viss um að hægt er að finna einhverja aðra leið til að spara.  Það er ekki mitt að koma með hugmyndir, en ég treysti starfsfólki Sjúkratrygginga til að finna leið sem bitnar minna á þeim sem eru í mestum vanda fyrir.


mbl.is Ætla að hætta að greiða Heimahjúkrun barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Marínó, Brjálæðingarnir ætla að moka sandi fyrir 300 milljónir úr Landeyjarhöfn og innsiglingunni. Hvað heldurðu að það myndi hjálpa mörgum langveikum?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 1.12.2010 kl. 21:25

2 Smámynd: Hörður Þórðarson

Heir heir, takk Marinó og Jóhannes. Hvenær verður farið út í raunverulegan niðurskurð? Hvenær verður þingmönnum fækkað? Hvenær verður sendiráðum lokað? Hvenær verður hætt að eyða fé í sandmokstur? Hvenær verður lokað fyrir einkavinavæðingu? Hvenær verður lokað fyrir ofurlaun til handa þeim sem stjórna sjóðum og fyrirtækjum sem eru styrkt af ríkinu? Hvenær verða skornar niður ofvaxnar ríkisstofnanir sem hafa þanist út langt umfram það sem þörf er á?

All þetta ættu að gerast, löngu áður en skorin er niður heilsugæsla fyrir börn. Hvers konar fólk er það eiginlega sem stjórnar þessu volaða landi?

Hörður Þórðarson, 2.12.2010 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Marinó G. Njálsson
Marinó G. Njálsson
Upplýsingaöryggi og persónuvernd eru mínar ær og kýr, þó ég blaðri um allt og ekkert hér á blogginu. Er í Hagsmunasamtökum heimilanna og berst fyrir réttlæti fyrir heimili í landinu.  Loks er ég faggiltur leiðsögumaður.  Netfangið mitt er mgn@islandia.is og netfang fyrirtækisins oryggi@internet.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1678108

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband